April 29th, 2005 — 4:17pm
Þar sem ég er orðinn svo merkilegur og margir vilja umgangast mig hef ég ákveðið að leggja fyrir ykkur próf í mér. Þeir sem ekki ná lágmarks árangri munu ekki fá að eiga við mig samskipti framar. Þeir sem verða svo óheppnir geta þó fengið að taka prófið aftur.
Hérna er prófið
11 comments » | Uncategorized
April 27th, 2005 — 10:41am
Allir í kringum mig virðast annaðhvort vera að koma frá útlöndum eða á leiðinni þangað. Ég neita því ekki að í mér býr smá öfund þar sem ég sit sem fastast í bláum skrifstofustól.
Stólinn er reyndar þeim eiginleika gæddur að ég get hallað bakinu aftur horft á sprungurnar í loftinu og látið mig dreyma.
Þrátt fyrir öfundina gleðst ég yfir því að allt þetta fólk skuli láta drauma mína rætast.
6 comments » | Uncategorized
April 27th, 2005 — 12:14am
Loksins loksins náði Esprelloz, félag námshneigða hluta Elíasar, sínu fram.
Elías hefur á síðustu dögum lagt fram það námsframlag sem Esprelloz hefur farið fram á. Klöppum fyrir Esprelloz, frábært framtak sem mun tryggja Elíasi góðan árangur í prófunum.
1 comment » | Uncategorized
April 26th, 2005 — 9:31pm
„Flugvallarmálið”, þ.e.a.s. umræðan um það hvort flugvöllurinn eigi að fara eða vera, þ.e.a.s. deilan um framtíð Reykjarvíkurflugvallar… þið vitið hvað ég er að tala um… er eitt af vinsælli umræðumálum líðandi stundar.
Eins og í annarri umræðu þá hefur þátttakendunum í þessari umræðu verið skipt í tvo andstæða hópa. Þeir heita borgarbúar og landsbyggðarfólk. Ef ég vil flugvöllinn burt þá er ég á móti landsbyggðinni og ef ég vil halda flugvellinum þá er ég á móti betri borg. Þetta er tilhneiging sem ég skil ekki. Umræða getur aldrei verið uppbyggileg og árangursrík ef fólki er ávallt skipað í tvo andstæða hópa. Slíkt fyrirkomulag rekur fólk aðeins ofan í skotgrafirnar og veldur því að mikilvæg sjónarmið fá aldrei að koma fram og kemur í veg fyrir að botn náist í umræðuna.
Þarna kem ég einmitt að gallanum við þessa „flugvallarumræðu”. Hvað með Reykjanesbæ? Er hann í landsbyggðarmegin eða borgarmegin? Þessu fór ég einmitt að velta fyrir mér þegar ég ók í gegnum þennan friðsama bæ í dag. Mér þætti gaman að heyra hvað skoðun þeir hafa á þessum málum. Ef Reyknesingar vilja taka við innanlandsfluginu eru þeir þá á móti landsbyggðinni? Eða bíddu, erum við þá kannski að efla landsbyggðina?
Ég er orðinn þreyttur á þessari flokkunaráráttu í umræðunni. Ég vil flugvöllinn út úr borginni en hef þó ekkert á móti landsbyggðinni. Á sama hátt er ég friðarsinni og tel að innrás Bandaríkjanna í Írak hafi verið ólögmætt og óréttlætanleg en er þó enginn stuðningsmaður Saddam Huein. Ég vil vernda hálendið en hef ekkert á móti Austfirðingum. Ég vil að Ísland verði herlaust land en hef ekkert á móti Reyknesingum. Ég reyki ekki en hef samt ekkert á móti fólki sem það gerir.
Ég ætti kannski að álykta um þetta?
1 comment » | Uncategorized
April 4th, 2005 — 5:24pm
Ég get valið um tvennskonar útsýni á skrifstofunni. Annarsvegar get ég fylgst með fólki bíða eftir strætó á milli þess bifreiðarnar þjóta fram og til baka eftir fjórum akreinum Hringbrautarinnar. Hinsvegar blasir efri hæð bóksölunnar fyrir mér, litríkir kilir og einstaka maður sem bera fyrir augun þar.
15 comments » | Uncategorized
April 4th, 2005 — 12:56pm
Þetta próf staðfestir það sem ég vissi áður, ég er guðleysingi.
You scored as atheism. You are… an atheist, though you probably already knew this. Also, you probably have several people praying daily for your soul.
Instead of simply being “nonreligious,” atheists strongly believe in the lack of existence of a higher being, or God.
|
atheism
|
|
92% |
|
Paganism
|
|
71% |
|
agnosticism
|
|
58% |
|
Satanism
|
|
54% |
|
Islam
|
|
54% |
|
Buddhism
|
|
50% |
|
Judaism
|
|
42% |
|
Christianity
|
|
33% |
|
Hinduism
|
|
17% |
Which religion is the right one for you?
created with QuizFarm.com
3 comments » | Uncategorized