Café Esprelloz
Kaffi er mér, eins og þeir sem mig þekkja, ákaflega hugleikið. Fyrir mér er kaffi það sem guð er fyrir páfanum, eins og ég hef áður útskýrt á þessum vettvangi.
Mörgum, þá sérstaklega Guðrúnu Svövu, þykir kaffineysla mín vera óhófleg, svo vægt sér til orða tekið. Það er staðreynd sem ég hvorki get né hef neitað. Mér er það einnig fulljóst að óhóflega neysla kaffis getur haft ýmsar neikvæðar afleiðingar í för með sér, svo sem vindgang, magaverki, magasár og andfýlu.
Meðvitaður um þetta hef ég mikið, oft í kaffivímu, með verk í maga, vingang og andfúll, hugsað um það hvernig ég bætt kaffineysluvenjur mínar með það að markmiði að lágmarka aukaverkanirnar og hámarka vímuna(upplifunina). Nú virðist mér sem lausnin sé fundin. Café Esprelloz.
Lausnina, eða öllu heldur blönduna, hef ég gefið nafnið, eftir hliðarsjálfi mínu, Café Esprelloz. Café Esprelloz er reyndar engin nýjung heldur endurbætt og ýkt útgáfa af Café Latté, það er að segja Café Latté með fjórföldum Espresso.
Nú nægir mér einn skammtur af Café Esprelloz á dag og eftir að hafa farið eftir því neyslumynstri í tvær vikur get ég vottað að þetta er lausnin sem ég leitaði. Hámarks víma, engar aukaverkanir, nema kannski andfýla.
Þið getið pantað Café Esprelloz á Stúdentakjallaranum. Ég ræð ykkur eindregið frá því að drekka meira en eina slíka blöndu á dag.
Category: Uncategorized
May 13th, 2005 at 21:47
Erum við að tala um formúlu ? Kannski xx formúluna?