Peningaskot
Á mánudaginn fylgdist ég með þætti á Skjá einum sem kallaðist Þrumuskot, sem er úrdráttur úr leikjum síðustu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.
Þátturinn var tileinkaður fallbaráttunni úr deildinni, enda um síðustu umferð leiktíðarinnar að ræða. Ekki ætla ég þó að fjalla um frammistöðu leikmannanna heldur fréttamannsins sem lýsti því sem fyrir augu bar.
Það eina sem hann virtist hafa áhuga á var hversu mikið þetta mark, þessi sending og þessi mistök gætu hugsanlega kostað hina og þessa í beinhörðum peningum. Hann gleymdi hinsvegar algjörlega að tala um stoltið og metnaðinn sem yrðu særð ef liðin féllu. Nei þetta snérist allt um peninga, ekki metnað, eldmóð og ástríðu fyrir leiknum.
Ég held þó í vonina að það hafi einungis verið þessi afvegaleiddi fréttamaður sem er svo fyrtur að hann sjái einungis peninga í hverri hreyfingu íþróttamanna.
Category: Uncategorized
May 18th, 2005 at 14:07
Það er borin von.
May 20th, 2005 at 23:36
Ég skal nú segja þér að þetta er nær þér en þú heldur. Ég klúðraði 2 vítaskotum í úrslitaleik 2 deildarinar fyrir 3-4 árum þegar 5 sék voru eftir og jafnt og við töpuðum leiknum á flautukörfu. Það kostaði félagið 100 þús kr í styrk að vinna ekki leikinn. Svo það má segja ég hafi klúðrað 100 þús kr vítaskotum. Að vísu vissi ég það ekki fyrr en eftir leikinn
May 25th, 2005 at 22:29
LIVERPOOL
May 26th, 2005 at 00:10
May 30th, 2005 at 08:18
Ég hef alltaf litið svo á að KA hafi tapað fúlgu fjár þegar ég hætti áður en þeir gátu selt mig til AC Milan. Og þá hefðu Liverpool sko ekki náð að jafna …