Nú hafa Vinstri-græn loksins tekið þá ákvörðun að segja skilið gömlu tímanna og taka upp lýðræðisleg vinnubrögð við val á framboðslista flokksins. Almennur flokksfundur samþykkti í síðustu viku að fram færi lokað prófkjör þar sem fulltrúar flokksins í næstu borgarstjórnarkosningum verða valdir.
Auðvitað ómuðu einhverjar örvæntingafullar raddir gamalla tíma á þessum fundi. Raddir sem voru uppfullar af ótta við lýðræðið og vilja fólksins í flokknum. Nú eru þessir tímar vonandi að baki og hálsarnir sem raddirnar bárust úr búnir að ná lýðræðisandanum.
Nú fær hinn almenni flokksmaður loksins tækifæri til þess að koma uppstillingu á lista, eitthvað sem lokuð klíka hefur séð um hingað til. Því er mikilvægt að hæft og gott fólk bjóði fram krafta sína í þágu flokksins.
Þegar ég í huga mínum tók að renna í gegnum þá flokksbræður og -systur sem ég treysti best til þess að koma hugmyndum mínum og flokksins á framfæri í borgarstjórn á heiðarlegan og uppbyggilegan hátt þá kom flokksystir mín Dögg Hugósdóttir strax upp í hugann.
Á því ári sem ég hef þekkt Dögg hefur hún með verkum sínum og framkomu vaxið jafnt og þétt í áliti hjá mér og treysti ég nú engum betur en henni til þess að sitja í forystu flokksins í Reykjavík. Ég hvet Dögg eindregið til þess að sækjast eftir öðru af tveim efstu sætunum í komandi prófkjöri.
Það er trú mín að Dögg muni lyfta pólitíkinni í borginni upp á nýtt plan, upp úr tjörninni. Ef svo illa fer að R-listinn bjóði fram aftur þá tel ég nauðsynlegt að hafa Dögg þar innanborðs vegna þess hann þarf hann nýtt blóð í stað þess súra sem nú rennur um æðar hans.