Aug 30
X-D

Þýðir X-D á SMS-máli að kjósa brosandi með lokuð augun?

Aug 23

Ég skil það ekki þegar menn tala um að þeir væru til í að vera fluga á vegg hér eða þar. Frá mínum bæjardyrum séð liggur fluga aldrei betur við höggi en akkúrat þegar hún er á vegg. Það er hinsvegar allt annað mál að vera fluga á gluggatjaldi, það er alveg fýsilegur kostur, þ.e.a.s. ef menn hafa áhuga á því að vera fluga.

Aug 23

Það eru ekki skemmtileg skilaboð sem skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra sendir nemendum sínum í þessari frétt. Það fer ekki milli mála að hann telur nemendur sína vera skúrka.

Aug 23

Einhversstaðar í miðju mókinu á sextántímanæturdagvaktinni á laugardaginn til sunnudags rann þetta allt saman upp fyrir mér. Svörin birtust mér á færibandi, eða var það á hringekju, já hringekja var það og pönnur fullar af rauðglóandi og fljótandi kísiljárni. Þá gerðist það. Ég fékk hugmynd. Mótmælaveggur.

Koma skal upp vegg fyrir framan Alþingi, Stjórnarráðið, Ráðhúsið og samskonar byggingar. Á veggin verður fólki frjálst að rita eða krota hvað sem það vill. Lega Veggsins verður þannig að skilboð hans fara ekki fram hjá þeim sem um byggingarnar ganga.

Ef svona veggjar nyti við þá neyddust mótmælendur og aðrir ósáttir borgarar ekki til þess að koma skilboðum sínum og athugasemdum fyrir á veggjum varnar- og saklausra húsa borgarinnar. Yfirvöld geta í rauninni bara sjálfum sér um kennt fyrir að hafa ekki komið svona vegg upp fyrr, skilaboðin eru nú ætluð þeim.

Aug 17

Það er furðulegt að sjá hvernig fólk túlkar ákvörðun VG-R að bjóða fram undir eigin merkjum. Það virðist hreinlega standa á haus þegar það hugsar.

Raunin er sú að ákvörðunin var knúin fram ungliðum og öðrum víðsýnum félagsmönnum, sama hóp og knúði fram að prófkjör verður haldið í fyrsta sinn í sögu flokksins.

Það má lengi deila um það hvort stöðva hafi átt það málþóf sem var í uppsiglingu á fundinum, málþóf um mál sem var útrætt fyrir löngu. Ég tel það hafa verið eðlilegt þar sem því var einungis ætlað að tefja félagsmenn, jafnvel þreyta þá frá því að greiða atkvæði um tillögu á lýðræðilegan hátt. Niðurstaða fundarins var fyrir löngu ljós og það hefði ekki skipt neinu máli þótt haldnar hefðu verið fleiri ræður um svart malbikshjarta íhaldsins.

R-listinn var fyrir löngu liðið lík. Það var aðeins þröngur hópur kreddufullra félagshyggjukjána sem hefur undanfarna mánuði látið hann dansa fyrir eigin handafli. En eftir nokkra mánaða dans með líkið var náfnykurinn þó orðinn svo megn að þeir misstu hann í gólfið. Þá loksins áttuðu flestir sig á því að þetta var búið.

Þeir eru þó enn til sem eru að reyna lífgunaraðgerðir á nokkra mánaða gömlu líkinu. Aðrir eru aðeins nútímalegri og ætla að reyna að klóna hann, á einhvern furðulegan hátt reyndar.

Aug 11

Er ekki kominn tími til þess að breyta eitthvað þessu Kastljósi hjá RÚV. Ég veit ekki hvort að það er formið, umgjörðin eða umsjónarfólkið, en þetta eru afskaplega óspennandi þættir.

Þeir eru meira að segja svo óspennandi að umsjónarfólkið hefur engan áhuga á neinu, sérstaklega ekki viðmælendunum eða umræðuefninu.

Megi ferskir vindar fara að blása um höfuð Boga.

Aug 10

Geir Guðjónsson, minn gamli skólabróðir, skrifaði skemmtilega grein á Selluna. Í henni fjallar hann um byggðarstefnu stjórnvalda á nokkuð skemmtilegan og sniðugan hátt. Ég hvet alla til að lesa þessa grein hans.

Í henni fjallar hann um það, reyndar frá örlítið öðru sjónarhorni, sem ég hef talið vera mestu heimskuna við stóriðjudans Valgerðar Sverrisdóttur.

Í greininni vekur Geir athygli á því félagslega ójafnvægi sem stóriðjustefnan getur valdið í litlum samfélögum úti á landi. Sérstakar áhyggjur hefur hann þó að því hve fá kvennastörf verða til og afleiðingum þess. Það er að mun fleiri karlmenn en konur búa nú á landsbyggðinni, en þessu er einmitt öfugt farið á höfuðborgarsvæðinu. Þess má geta að Geir er einhleypur, gagnkynhneigður og býr úti á landi.

Það er þetta félagslega ójafnvægi sem stefna Valgerðar veldur sem ég hef áhyggjur að. Valgerður og flestir framsóknarmenn virðast ekki hafa áttað sig á staðreyndunum. Ung fólk fer ekki suður með stóriðjudrauma í bakpokanum heldur fer það suður til að mennta sig. Það snýr svo aldrei heim vegna þess að þar eru ekki í boði störf við hæfi.

Þetta veldur því að ekki einungis verða kynjahlutföllin milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins misjöfn heldur einnig menntastigið, laun og lífsgæði.

Þetta er þróun sem eflaust var hafin áður en Valgerður setti upp kúrekahattinn, tróð sér í stígvélin og hóf að dansa. En dans Valgerðar gerir ekkert til þess að hægja á henni heldur þvert á móti flýtir henni. Í framtíðinni verður því um að ræða frekar einhæf og fábrotin karlasamfélög á landsbyggðinni. Menn mega svo deila um kosti þess og galla.

Aug 5

Þessi vinnuvika er eins og vinnuvikur framtíðarinnar ættu að verða, aðeins fjórir dagar.

Ég er sannfærður um að við eigum að stytta vinnuvikuna um einn dag, úr fimm í fjóra, í stað þess að stytta vinnudaginn um eina til tvær klukkustundir eins og sum lönd hafa gert. Það mætti jafnvel lengja vinnudaginn um eina til tvær stundir og vinna þannig upp á móti styttingu vinnuvikunnar. Þetta tel ég eiga að vera framtíðarbaráttumál launþegahreyfinganna.

Þannig kerfi myndi ala af sér afkastameiri, afslappaðri og ánægðari starfsmenn. Það væri hægt að drekka frá sér allt vit á föstudegi, endurheimta það á laugardegi, nota það í eitthvað uppbyggilegt á sunnudegi en samt átt einn dag eftir til þess að safna orku. Endurnærðir og ánægðir starfsmenn myndu svo mæta til vinnu á þriðjudegi. Mánudagur til mæðu heyrði þá sögunni til.

Aug 2

Fríhelgi verslunarmanna að baki og allir búnir að vera á rassgatinu nema ég. Helgin innihélt ekkert áfengi en þess í stað heilmikið járnblendi.

Í ljósi þess að ég hef ákveðið að feta íslensku leiðina og stökkva ofan í skuldafenið þá ákvað ég að taka fram rauða gallan, hjálminn og stáltána um helgina. Þetta var auðvitað gert til þess að halda höfðinu upp úr feninu fremur en af ástríðu fyrir járnblendi.

Nú er þriðjudagur (mánudagur) og ég er strandarglópur á Akranesi, a.m.k. til klukkan tíu því að þá fer áætlanabílinn héðan til Reykjavíkur. Það er skrautlegur hópur bílstjóra sem aka þessum bíl og því ekkert sérstakt tilhlökkunarefni að ferðast með honum. Ég losa bara eftstu töluna, jafnvel aðra til, og geri mér upp kæruleysi.