Aðstoð að handan
Það er gleðilegt að sjá að forveri minn í embætti er orðin framkvæmdastýra S.U.S. Ég vona að henni takist að halda aftur af þeirri andfélagslegu stefnu sem fram kom í ályktun samtakana um menntamál á síðasta landsfundi þeirra*. Þar segir meðal annars:
“SUS telur opinbera styrki til menntamála ekki eiga rétt á sér og vilja afnema þá með öllu.”
og
“Ungir sjálfstæðismenn telja vert að háskólastúdentar greiði sjálfir fyrir nám sitt að öllu eða verulegu leyti.“
Henni býður augljóslega mikið og erfitt starf. Ég óska henni alls hins besta við að halda áfram að tryggja hag stúdenta við Háskóla Íslands á nýjum vetvangi. Ég treysti því að hún standi sig betur en ákveðin þingkona Framsóknarflokksins í þeim efnum.
Category: Uncategorized