Ég skil ekki hvað „sjálfstæðismenn” eru alltaf væla undan 365 og væna þá um að vera hliðhollir öðrum. Þá ályktun draga þeir auðvitað út frá þeirri þröngu sýn sem þeir hafa á lífið og tilveruna - „ef þú ert ekki með þá ertu á móti mér”. Því fer þó fjarri að 365 séu á alltaf á móti sjöllunum.
Undanfarnar vikur hefur þátturinn sem áður var þekktur undir nafninu Ísland í bítið verið helgaður prófkjöri kristilega lýðræðisflokksins. Hverju þetta sætir er ekki gott að segja en ég hef þó tvær tilgátur.
Tilgáta 1:
365 hefur snúið af villu sín vegar og gengið í lið með flokknum.
Tilgáta 2:
Flokkurinn leigði þáttinn í tvær vikur fyrir prófkjörið. Er sjálfstæðisflokkurinn þá búinn að vera að auglýsa á „öldum ljósvakans” í tvær vikur, öfugt við aðrar yfirlýsingar.
Ég persónulega hallast að tilgátu 2. Frambjóðendur ekki beint verið spurðir krefjandi spurninga af stjórnendum þáttarins. Stjórnendur hefðu reyndar alveg eins getað skroppið í kaffi. Svo vita auðvitað allir að eigendur 365 eru siðlausir kapítalistar sem gera allt fyrir hagnað.








