Archive for December 2005


Kvikmynd byggð á ævi minni:

December 20th, 2005 — 8:58am


QuizGalaxy.com!

Take this quiz at QuizGalaxy.com

Er ég maðurinn sem allir hafa verið að bíða eftir?

2 comments » | Tímaþjófar

Jæja,…

December 12th, 2005 — 3:10pm

ætli það sé best að stökkva á lestina. Þetta er það nýjasta nýtt í bloggheimum.

Settu nafnið þitt í kommentakerfið og..

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt!

Eru ekki allir spenntir?

27 comments » | Tímaþjófar

Samsæri gegn útrásinni?

December 9th, 2005 — 5:18pm

Stjórnarformaður Byko lét þau orð fall í Fréttablaðinu(á 6. bls.) í gær að íslenska verkalýðshreyfingin standi fyrir samsæri gegn þeim íslensku fyrirtækjum sem taka þátt í hinn margrómuðu „útrás”.

Þetta sagði hann í kjölfar þess(2. bls.) að íslenska verkalýðshreyfingin bauð starfsmönnum fyrirtækja í Eystrasaltslöndunum sem eru í eigu íslenskra aðila fram aðstoð sína. Verkalýðshreyfingin þar er afar veik enda er það undantekning ef starfsmenn eru aðilar að verkalýðsfélagi.

Ég get ekki séð að þarna standi verkalýðshreyfingin fyrir samsæri gegn útrásinni, heldur sýnist mér hún beinlínis vera að taka þátt í henni. Mér þykja ummæli stjórnarformannsins því lýsa sorglegri afstöðu hans sem ég vona að hann deili með fáum.

Hann segir einnig að verkalýðshreyfingin hafi engan skilning á því umhverfi sem er þarna. Ég spyr, þekkti hann eitthvað sérstaklega til í Eystrasaltslöndunum þegar hann fékk fyrst þá flugu í höfuðið að nýta sér ódýrt vinnuafl þar?

Það hlýtur að vera eðlilegt að verkalýðsfélög taki þátt í hnattvæðingunni og fylgi útrásinni frægu. Hnattvæðingin á ekki eingöngu að þjóna alþjóðlegum fyrirtækjum og tryggja þeim ódýrt vinnuafl heldur á hún einnig að tryggja verkamönnum og fólki allstaðar í heiminum betri lífskilyrði. Ég fagna því ef íslenska verkalýðshreyfingin ætlar að vera svo framsýn að færa baráttu sína út fyrir landssteinana og miðla þar af þekkingu sinni, reynslu og metnaði.

2 comments » | Stjórnmál

Gagnrýni

December 9th, 2005 — 8:44am

Ég held að sá þáttur sem lýsi stjórnmálamönnum hvað best og skilur þá í góða og slæma sé hvernig þeir taka á gagnrýni.

Góður stjórnmálamaður bregst við gagnrýni og reynir að bæta það sem miður er. Slæmur stjórnmálamaður svarar gagnrýni í stað þess að breggðast við henni. Gagnrýni er alltaf jákvæð og þjónar eingöngu því hlutverki að hjálpa mönnum að vinna vinnuna sína.

Það er átakanlegt að horfa upp á hvern ráðherran í ríkisstjórn Íslands á fætur öðrum að svara þeirri gagnrýni sem þeir fá, og það illa, í stað þess að breggðast við henni. Hvenær ætla þeir að koma niður úr þessum kirkjuturni sínum og hlusta á þá sem hafa vit á hlutunum?

3 comments » | Stjórnmál

Það komst upp um mig

December 6th, 2005 — 5:53pm

Upp komast svik um síðir og í þetta skiptið strax. Systir mín opinberaði þá lygi sem sem ég bar á borð fyir ykkur með því að segjast vera ónæmur fyrir kitli. Auðvitað er það lygi.

Ég ætla því að breggðast við kitli Auðar og klóra mig fram þessum krefjandi spurningum.

Continue reading »

1 comment » | Tímaþjófar

Að mánuði liðnum

December 5th, 2005 — 5:01pm

Nóvember er liðinn og því óhætt að vakna til lífsins. Þann 5. nóvember, síðastliðinn, las ég stjörnuspá steingeitar í mogganum. Hún bauð mér að að vefkrota ekki í mánuð.

Ég velti þessu boði fyrir mér og komst að lokum að þeirri niðurstöðu að það vissara væri vissara að fara eftir því. Ég gæti nú varla tapað miklu á því nema ef til vill smá athygli í vefheimum.

En nú er mánuðurinn liðinn án vefkrots. Ég er ennþá óhultur, þannig að það borgaði sig greinilega að fara eftir stjörnuspánni.

1 comment » | Lífið

Kitl

December 5th, 2005 — 4:57pm

Ég vil taka það fram að ég finn ekki fyrir kitli og því er ekki hægt að kitla mig.

1 comment » | Tímaþjófar

Back to top