Samsæri gegn útrásinni?
Stjórnarformaður Byko lét þau orð fall í Fréttablaðinu(á 6. bls.) í gær að íslenska verkalýðshreyfingin standi fyrir samsæri gegn þeim íslensku fyrirtækjum sem taka þátt í hinn margrómuðu „útrás”.
Þetta sagði hann í kjölfar þess(2. bls.) að íslenska verkalýðshreyfingin bauð starfsmönnum fyrirtækja í Eystrasaltslöndunum sem eru í eigu íslenskra aðila fram aðstoð sína. Verkalýðshreyfingin þar er afar veik enda er það undantekning ef starfsmenn eru aðilar að verkalýðsfélagi.
Ég get ekki séð að þarna standi verkalýðshreyfingin fyrir samsæri gegn útrásinni, heldur sýnist mér hún beinlínis vera að taka þátt í henni. Mér þykja ummæli stjórnarformannsins því lýsa sorglegri afstöðu hans sem ég vona að hann deili með fáum.
Hann segir einnig að verkalýðshreyfingin hafi engan skilning á því umhverfi sem er þarna. Ég spyr, þekkti hann eitthvað sérstaklega til í Eystrasaltslöndunum þegar hann fékk fyrst þá flugu í höfuðið að nýta sér ódýrt vinnuafl þar?
Það hlýtur að vera eðlilegt að verkalýðsfélög taki þátt í hnattvæðingunni og fylgi útrásinni frægu. Hnattvæðingin á ekki eingöngu að þjóna alþjóðlegum fyrirtækjum og tryggja þeim ódýrt vinnuafl heldur á hún einnig að tryggja verkamönnum og fólki allstaðar í heiminum betri lífskilyrði. Ég fagna því ef íslenska verkalýðshreyfingin ætlar að vera svo framsýn að færa baráttu sína út fyrir landssteinana og miðla þar af þekkingu sinni, reynslu og metnaði.
Category: Stjórnmál
December 11th, 2005 at 21:50
Ef madur tarf ekki ad vera greindari en tetta til ad vera stjornarformadur Byko ta er draumur minn um ad verd rikur fyrir tritugt allt i einu ekki svo fjarstaedur
December 11th, 2005 at 22:25
Já ég er sammála þér í þessu máli… eins og rosalega oft þegar um “pólitísk mál” er að ræða… enda sóttum við nú nokkrar kennslustundirnar saman í stjórnmálafræðinni… nokkrar