Archive for February 2006


Ósýnilega álverið

February 27th, 2006 — 7:50pm

Allir á Húsavík vilja álver, en vilja þó ekki sjá það eða verða varir við það yfir höfuð. Þeir vilja bara álver. Þetta kom skýrt fram í máli bæjarstjóra Húsavíkur í fréttum NFS í kvöld. Ég spyr því eðlilega: Er Grimmhildur búin að ljúga því að Húsvíkingum að álver séu ósýnileg?

3 comments » | Stjórnmál

Grimmhildur Álmann

February 17th, 2006 — 12:32pm

Ég fylltist ótta þegar ég horfðist í augu við Valgerði Sverrisdóttur á forsíðu Fréttablaðsins í gær. Í fyrstu áttaði ég mig ekki á því að um hana var að ræða, sá bara þessi köldu augu, grimmdarsvipinn og loðfeldinn. Grimmhildur Grámann hugsaði ég. Valgerður hefur varla verið ánægð þessa mynd. Aðrir segja að þarna hafi hún sýnt sitt rétta andlit.

1 comment » | Stjórnmál

Fimm orð sem lýsa mér?

February 14th, 2006 — 8:42pm

Þið sem þekkið mig megið gjarnan velja fimm orð sem lýsa mér.

3 comments » | Tímaþjófar

Júróvísjón

February 14th, 2006 — 11:15am

Í öðrum af leiðurum nýjasta tölblaðs The Reykjavík Grapevine hittir Sveinn Birkir Björnson naglan fast og örugglega á höfuðið. Þar segir hann allt sem ég vil segja um ruglið í kringum lag Silvíu Nætu. Hann orðar það bara betur en ég gæti gert.

Congratulations Iceland!

Ég vil einnig benda á aðra grein í sama blaði, en hún er um heimsókn á Akranes. Greinin er svosem ágæt en það besta við hana er viðtal við Gunnar Hafstein Ólafsson bekkjabróður minn úr grunnskóla. Það er alltaf gaman að hitta Gunna. Það er orðið ansi langt síðan ég hitti hann síðast og því gaman að hitta hann svona óvænt á síðum The Reykjavík Grapevine.

1 comment » | Fjölmiðlar

Frasadagur

February 13th, 2006 — 7:42pm

Í nýliðnu prófkjöri Samfylkingarinnar og óháðra(my ass) fóru Dagur Bé og stuðningsmenn hans mikinn. Þeir fóru ekki einungis mikinn í notkun á flottum og innihaldsrýrum frösum. Þeir fóru einnig mikinn í allskyns útúrsnúningum og orðaleikjum í kringum nafn hans. Þeir tæmdu þó ekki hugmyndaskjóðuna því hér er topp-tíu-listi yfir frasa sem Dagur Bé vild eiga til góða.

10. Dag, eftir Dag(við lagið)
9. Á morgun kemur nýr Dagur
8. Góðan Dag
7. …fimmtudagur, föstudagur, laugardagur, nýr Dagur
6. Guð gef oss í dag voran Dag
5. Dagsskipunin er ný Reykjavík
4. Betra frá degi til Dags
3. Gott Dagsverk
2. Ekkert hversdaglegt við þennan Dag
1 .Dagur, enginn venjulegur dagur!

5 comments » | Stjórnmál

Stúdentablaðið

February 12th, 2006 — 6:59pm

Í Víðsjá síðastliðinn fimmtudag var viðtal við Magnús Björn, ritstjóra Stúdentablaðsins. Í viðtalinu kom Magnús Björn til dyranna eins og hann er jafnan klæddur og talaði tæpitungulaust. Orð Magga veittu dagskrárgerðarmönnum Víðsjár slíkan innblástur að inngangspistill föstudagsins var leiddur af orðum hans.

Ég mæli með því að fólk hlýði á bæði:
Viðtal við Magnús Björn
Froðumenning

Og hvernig bregst ég við? Jú ég uppfæri bloggsíðuna mína. Ó mig auman.

1 comment » | Fjölmiðlar

Persónunjósnir

February 11th, 2006 — 6:39pm

Auður stendur enn og aftur í persónunjósnum og ákvað því að næla mig eða í mig. Ætli ég láta þetta ekki eftir henni og svali forvitni hennar og annarra.

Continue reading »

4 comments » | Tímaþjófar

Skemmtilegar tilviljanir

February 9th, 2006 — 11:40am

Tilviljanir eru óútreiknanlegar og oft skemmtilegar. Nokkrar tilviljanir hafa skotið upp kollinum í tengslum við kosningar til Stúdentaráðs Háskóla Íslands í gær og í dag..

Í gær birtust skyndilega á kjörstöðum bæklingar frá tveim frambjóðendum í prófkjöri Samfylkingarinnar og óháðra. Í einum þeirra var mikil lofgjörð til Röskvu ásamt kennimerki hennar, hin rísandi sól. Í hinum var ansi mikið af myndum af frambjóðendum Röskvu og Háskólalistans. Þessa bæklinga dæmdi kjörstjórn sem áróður á kjörstað lét fjarlægja umrædda bæklinga. Það fór auðvitað ekki á milli mála að um áróður var að ræða, spurningin er þó hvort hann hafi verið á réttum kjörstað?

Það að kynningarriti Votta Jehóva með titilinn Vaknið! var dreift um Háskólasvæðið í gær finnst mér mun sniðugri tilviljun. Merkileg tilviljun það og hefur eflaust glatt hana Vöku gömlu. Kjörstjórn ákvað að dæma þennan áróður Vottanna, sem hvetja fólk til að vakna, ekki sem áróður. Þetta var auðvitað trúaráróður en ekki stjórnmálaáróður eins og hjá vonarstjörnum kratanna. Það er ákveðinn stigsmunur þar á skilst mér.

Magnaðasta tilviljun er þó án efa 39. blaðsíða Fréttablaðsins í dag(55 í pdf). Þar prýðir Anna Pála, fráfarandi oddviti Röskvu, alla síðuna. Þetta er þó ekki auglýsing frá Röskvu heldur er verið að auglýsa 16 manna úrslit Meistarans. Þetta kalla ég magnaða tilviljun.

Comments Off | Stjórnmál

Læra fyrir morgundaginn.

February 8th, 2006 — 7:14pm

Ég vil bara minna á orð mín síðan í gær. Ég stend enn fullkomlega við þau.

Ykkur er því fyrir bestu að læra að setja X við Háskólalistann. Þið vitið hvað gerist annars.

Háskólalistinn

Comments Off | Stjórnmál

Veggur á milli húsa

February 8th, 2006 — 6:26pm

Það er skrítið til þess að hugsa að það situr mjög líklega einhver hinum meginn við veginn í stofunni hjá mér. Ég hef þó ekki grænan grun um hver það er, hvað eða hvort eitthvað sé þar. Þetta er á vissan hátt spennandi tilhugsun og ég velti því stundum fyrir mér hvað býr að baki veggnum.

Ég gæti reyndar auðveldlega “googlað” íbúðina eða einfaldlega farið og bankað upp á. Ég ætla samt ekki að gera það. Ég ætla að halda áfram að velta þessu fyrir mér. Hugmyndir mínar eru reyndar ekki orðnar skýrar ennþá, en ég mun láta ykkur vita þegar þær verða það. Ég giska þó á að það búi þar mannvera. Ég auðvitað segja ykkur frá því þegar ég kemst að því hvað er í raun bak við vegginn.

Comments Off | Lífið

Back to top