Sumarið í hyllingum

Ég setti nýársheit í síðustu færslu. Það gildir auðvitað bara í eitt ár - 2006. Ég mun reyna að halda það eftir fremsta megni. Það er þó annað heit sem ég hef mun meiri metnað fyrir, það er lífsheit mitt.

Lífsheit mitt er að ferðast um alla hluta jarðarinnar, helst um öll lönd. Ég gerði ekkert á síðasta ári til þess að fikra mig í átt að þessu takmarki. Á þessu verður þó breyting í sumar.

Við Guðrún Svava erum búin að ákveða að skella okkur til Feneyja og svo í ferðalag um Slóveníu í sumar. Ég varla beðið. Svo eru reyndar farin að verða til ýmis áform um ferlalög og gönguferðir innanlands. Ég er strax farinn að hlakka til sumarsins.

Category: Ferðalög

One Response to “Sumarið í hyllingum”

  1. Ásgeir H

    Ég er búin með 30 lönd. Spurning um veðmál? Það stæði að vísu þangað til við hrökkvum upp af en það má leysa það einhvernveginn …

Back to top