Skemmtilegar tilviljanir

Tilviljanir eru óútreiknanlegar og oft skemmtilegar. Nokkrar tilviljanir hafa skotið upp kollinum í tengslum við kosningar til Stúdentaráðs Háskóla Íslands í gær og í dag..

Í gær birtust skyndilega á kjörstöðum bæklingar frá tveim frambjóðendum í prófkjöri Samfylkingarinnar og óháðra. Í einum þeirra var mikil lofgjörð til Röskvu ásamt kennimerki hennar, hin rísandi sól. Í hinum var ansi mikið af myndum af frambjóðendum Röskvu og Háskólalistans. Þessa bæklinga dæmdi kjörstjórn sem áróður á kjörstað lét fjarlægja umrædda bæklinga. Það fór auðvitað ekki á milli mála að um áróður var að ræða, spurningin er þó hvort hann hafi verið á réttum kjörstað?

Það að kynningarriti Votta Jehóva með titilinn Vaknið! var dreift um Háskólasvæðið í gær finnst mér mun sniðugri tilviljun. Merkileg tilviljun það og hefur eflaust glatt hana Vöku gömlu. Kjörstjórn ákvað að dæma þennan áróður Vottanna, sem hvetja fólk til að vakna, ekki sem áróður. Þetta var auðvitað trúaráróður en ekki stjórnmálaáróður eins og hjá vonarstjörnum kratanna. Það er ákveðinn stigsmunur þar á skilst mér.

Magnaðasta tilviljun er þó án efa 39. blaðsíða Fréttablaðsins í dag(55 í pdf). Þar prýðir Anna Pála, fráfarandi oddviti Röskvu, alla síðuna. Þetta er þó ekki auglýsing frá Röskvu heldur er verið að auglýsa 16 manna úrslit Meistarans. Þetta kalla ég magnaða tilviljun.

Category: Stjórnmál

Comments are closed.

Back to top