Frasadagur

Í nýliðnu prófkjöri Samfylkingarinnar og óháðra(my ass) fóru Dagur Bé og stuðningsmenn hans mikinn. Þeir fóru ekki einungis mikinn í notkun á flottum og innihaldsrýrum frösum. Þeir fóru einnig mikinn í allskyns útúrsnúningum og orðaleikjum í kringum nafn hans. Þeir tæmdu þó ekki hugmyndaskjóðuna því hér er topp-tíu-listi yfir frasa sem Dagur Bé vild eiga til góða.

10. Dag, eftir Dag(við lagið)
9. Á morgun kemur nýr Dagur
8. Góðan Dag
7. …fimmtudagur, föstudagur, laugardagur, nýr Dagur
6. Guð gef oss í dag voran Dag
5. Dagsskipunin er ný Reykjavík
4. Betra frá degi til Dags
3. Gott Dagsverk
2. Ekkert hversdaglegt við þennan Dag
1 .Dagur, enginn venjulegur dagur!

Category: Stjórnmál

5 Responses to “Frasadagur”

  1. Ásgeir H

    Er rassinn á þér sem sagt þessir óháðu sem alltaf er verið að tala um?

  2. Elías Jón

    Já rassinn á mér hefur ekki skoðun á nokkrum sköpuðum hlut.

  3. Bragi

    Dag urg

  4. Heiðar

    Hvað með: Dómsdagur er í nánd

  5. Jósi

    Ég kaus í þessum blessuðu kosningum. 2 skrefum fyrir framan mig í röðinni var Steingrímur Njálsson. Hver ætli hafi verið hans frambjóðandi?

Back to top