Sigtið
Við sáu Sigtið á Skjá einum í fyrsta skipti í kvöld. Þessi þáttur er með því fyndnara sem ég hef séð í langan tíma á Íslandi.
Comments Off | Fjölmiðlar
mín orð
Við sáu Sigtið á Skjá einum í fyrsta skipti í kvöld. Þessi þáttur er með því fyndnara sem ég hef séð í langan tíma á Íslandi.
Comments Off | Fjölmiðlar
Ég veit ekki hvort það var meðvitað hjá Sjónvarpinu en fréttaflutningur þess var alveg eins og fréttaflutningur bandarískra fjölmiðla er af aftökum.
Þarna var rætt við náttúruverndarsinna(andstæðinga dauðarefsinga og þá sem töldu fórnarlamb aftökunnar saklaust). Einnig var rætt við fulltrúa Illvirkjunnar og stóriðju- og náttúruspjallasinna(aðstandendur að sækjast eftir friðþægingu).
Ósvikin sorg var í augum og orðum náttúruverndarsinnanna. Stóriðju- og náttúruspjallasinnarnir sögðust glaðir en orð þeirra og augu voru full efasemda enda er aftaka Kárahjúka, rétt eins og aftökur á mönnum, óaftrurkræf og óréttlætanleg.
Comments Off | Lífið
Nú hafa ráðamenn þjóðarinnar og stjórnarmenn Illvrirkjunnar einungis stundarfjórðung til þess hætta við að innsigla stærstu mistök Íslandssögunnar. Hvað skildu þeir gera?
Látið ykkur ekki bregða þegar þið sjáið mig næst. Ég er kominn með ný gleraugu. Þau gömlu voru fyrir löngu síðan orðin of rispuð til þess að ég gæti gengið klakklaust um með þau. Ég mun reyna að halda þeim nýju órrispuðum.
Comments Off | Lífið
Ég gekk um miðbæinn í gær, um miðjan daginn og um kvöldið. Ég komst lífs af. Ég má teljast heppinn.
Ég ætla að gerast svo djarfur að fara aftur út úr húsi í dag. Er ég flón, hugaður eða hvort tveggja? Þið verðið að ráða úr því.
Comments Off | Lífið
Að undanförnu hef ég nokkrum sinnum fengið spurningu sem efnislega er eitthvað á þessa leið: “Hvernig þorir þú að búa í miðbænum?“. Alltaf verð ég jafn furðu lostinn þegar fæ svona spurningu. Hvað heldur fólk eiginlega um miðbæinn? Ég er orðlaus. Meinar fólk það í alvörunni þegar það segir “Borg óttans”? Ég hef alltaf álitið það kaldhæðnislegt grín að umfjöllun fjölmiðla um höfuðborgina.
Það þurfti engan kjark til þess að setjast að í miðbænum. Hér er yndislegt að búa.
Comments Off | Lífið
Þessi frétt hlýtur að vera athyglisverð lesning fyrir Ungt jafnaðararfólk í ljósi landbúnaðarmála- og Evrópumálahluta stjórnmálaálytunar síðasta landsþings þeirra.
Kratar!
Jæja, þá virðist Nylon-flokkurinn vera búinn að meika það úti í hinum stóra heimi. Nú verður maður að passa sig að tala ekki illa um tónlistina þeirra opinberlega, hvað þá annað sem tengist þeim.
Mér hefur reyndar alltaf fundist húmorinn að baki nafni flokksins vera góður, enda ekkert meira gervi en nælon.
Comments Off | Tónlist
Eitt mesta kjaftæði heimsins er hlutleysi fjölmiðlafólks.
Ekkert alvöru fjölmiðlafólk getur verið hlutlaus. Ef einhver hefur áhuga eða þekkingu á einhverju þá kemst hann ekki hjá því að hafa skoðun á því. Hlutleysi fjölmiðlamanna getur því einungis orðið ef þeir hafa enga þekkingu eða áhuga á efninu sem þeir fjalla um.
Fjölmiðlafólk sem er í raun hlutlaust er því vanthæft fjölmiðlafólk. Fjölmiðlafólk á því að gefa upp skoðun sína. Þannig geta neytendur metið fréttir þeirra út frá þeim upplýsingum.
Ef Ómar Ragnarsson má ekki flytja fréttir tengdar umhverfismálum þá má helmingur fréttafólks á RÚV ekki flytja fréttir af stjórnmálum. Mér finnst að fjölmiðlafólk ætti að fylgja fordæmi Ómars og gefa upp skoðanir sínar. Jafnframt ættu yfirmenn á RÚV ekki að taka það í mál að fréttamaður með jafn mikla þekkingu umhverfismálum hætti að fjalla um þau.
Nánast öll viðtöl sem umsjónarfólk Íslands í dag taka utan húss eru með viðtalstækninni “rölta og rabba”. Ekki veit ég hvort aðferðin sé það heitasta í fjölmiðlaheiminum í dag eða hvort hún sé fundin upp af umsjónarmfólki Íslands í dag. Hvort sem er þá finnst mér þetta ekki vera að gera sig. Það virðist engin af umsjónarfólki þáttarins, nema kannski Þorsteinn Joð, höndla þessa aðferð og enn síður gera viðmælendurnir það. Undantekningalaust verður þetta vandræðalegt. Það er átakanlegt að horfa upp á viðmælendurna reyna, móða og másandi, að halda í við spyrilinn á sama tíma og þeir reyna, eftir fremsta megni, að tala um einhvað vitrænt í leiðinni.
Er þetta meðvituð stefna hjá Íslandi í dag eða er þetta einhver innanhúss brandari hjá þeim?