Félag framsækinna ungmenna

Fyrir stuttu bárust mér þær fréttir að ágætur vinur minn, Stefán Bogi Sveinsson, hygðist bjóða sig fram til formanns Sambands ungra framsóknarmanna. Við þær fréttir taldi ég víst að minn þróttmikli vinnur væri að endurvekja samtökin enda taldi ég samtökin dauð eða að minnsta kosti í dvala.

Í kjölfarið hafði ég samband við vin minn og forvitnaðist um þetta endurvakningarbrölt hans. Í ljós kom að samtökin höfðu verið starfandi undanfarin ár og því ekki um endurvakningu að ræða. Það sem meira var, hann var að bjóða sig fram gegn sitjandi formanni. Ég spurði í framhaldi hvort að kosning hans í embættið væri ekki aðeins formsatriði. Hann sagði svo ekki vera og sagðist í raun eiga litla möguleika á sigri. Ég hváði og klóraði mér í höfðinu.

Ég skil ekki hvernig formaður samtaka sem hafa það að markmiði að láta aðra vita af tilveru sinni gat verið öruggur með endurkjör þegar fólk sem fylgist mikið með stjórnmálum taldi samtökin dauð eða að minnsta kosti í dvala.

Ég nennti reyndar ekki að klóra mér lengi enda mun ég seint skilja framsóknarfólk. Auk þess eru það góðar fréttir að ungt framsóknarfólk skuli ekki vera framsæknara en svo að hafna manni eins og Stefáni Boga.

Category: Stjórnmál

2 Responses to “Félag framsækinna ungmenna”

  1. Ásgeir H

    hey dúd, framsæknu ungmennin hafa náð séð niðri á þér og gert bloggið þitt grænt …

  2. Elías Jón

    Þau hafa greinilega farið á námskeið í Svíþjóð.

Back to top