Peningaþvottur

Einhverntíman var mér sagt að margir umsvifamiklir dópsalar eða þeir sem stunduðu ólöglega atvinnustarfsemi ættu pizzastaði til þess að þvo ágóðann, koma honum inn í kerfið. Penningarnir voru þvegnir með því gefa upp sölu á fleiri pizzum en í raun seldust. Engum datt í hug að selja pizzurnar á tugi eða jafnvel hundruð þúsunda króna, enda hefði það vakið grunsemdir. Sumum þótti reyndar grunsamlegt hve margar pizzur urðu til úr svo litlu hveiti.

Með þessa sögu í huga þá spyr ég hvort ekki sé grunsamlegt að selja ódýrt freyðivín á strípibúllu í miðbæ Reykjavíkur á 150 þúsund krónur? Er verið selja eitthvað meira en freyðivín?

Category: Stjórnmál

2 Responses to “Peningaþvottur”

  1. Arndís

    Elías Jón á strípibúllu í miðbæ Reykjavíkur!?

    Á dauða mínum átti ég von…

  2. Elías Jón

    Ég sá þetta í fréttunum. :)
    Það er ennþá styttra í dauða þinn en að ég rati inn á slíkan stað.

Back to top