Rök Vonarstjörnunnar

Samtal Vonarstjörnunnar við borgarbúa um almenningssamgöngur:

Borgarbúi: Hvað hefurðu á móti almenningssamgöngum?
Vonarstjarnan: Ekkert, borgarbúar eru bara búnir að velja einkabílinn
Borgarbúi: Ég er borgarbúi og mér var aldrei boðið upp á að velja
Vonarstjarnan: Það er vegna þess að það var bara einn kostur í boði, einkabíllinn
Borgarbúi: Er þá hægt að tala um val?

Færum þetta samtal upp á umræðuna um kjörgengi og kosnngarétt kvenna:

Kjósandi: Hvað hefurðu á móti konum?
Vonarstjarnan: Ekkert, kjósendur er bara búnir að velja karlinn
Kjósandi: Ég er kjósandi og mér var aldrei boðið upp á að velja
Vonarstjarnan: Það er vegna þess að það var bara einn kostur, karlar
Kjósandi: Er þá hægt að tala um val?

Category: Stjórnmál

2 Responses to “Rök Vonarstjörnunnar”

  1. Lalli

    Þetta er reyndar góður punktur. Klisjan um að borgarbúar hafi valið einkabílinn er hálf undarleg í þessu ljósi.

  2. Hannibal

    Ég hef aldrei skilið hvers vegna það sé svona mikið stór mál þótt að fyrirtækið Strætó skili fjárhagslegum hagnaði. Það eru bara sum fyrirtæki sem skila óbeinum hagnaði, t.d. í formi minni mengunnar, minna slits á vegum, fólk hittist… var t.d. í Ísland í dag áðan verið að ræða við ökumenn/konur í morgunn, minnir að það hafi verið fleiri en einn í einum bíl?

Back to top