Svartur dagur í sögu Stúdentaráðs?
Heyrst hefur að brestir séu komnir í samstarf Röskvu og Vöku í Stúdentaráði. Brestirnir munu vera svo alvarlegir að sjálfur formaður ráðsins mun hafa talað um svartan dag í sögu Stúdentaráðs. Deilan ku snúast um það hver hefði átt að redda kókinu með pylsunum í nýnemavikunni.
Fulltrúar Vöku í Stúdentaráði í fyrra lýstu mér sem friðarhöfðinga. Ég er tilbúinn að standa undir þeirri göfugu lýsingu og býð því hér með fram aðstoð mína að leysa úr deilunni um kókið og berja í brestina.
Það hefur verið frábært að fylgjast með því góða starfi sem samvinna Vöku og Röskvu í Stúdentaráði hefur leitt af sér. Það væri því synd að sjá það verða að engu vegna nokkurra kókdósa. Ef svo yrði þá væri hægt að tala um Svartan dag í sögu Stúdentaráðs.
Category: Stjórnmál
September 21st, 2006 at 12:29
Þetta er svona þegar menn taka ekki fram hvort kókið eigi að vera svart eða hvítt… Menn verða að passa sig á þessu
September 21st, 2006 at 12:31
Segðu mér að mér bara yfirsjáist… er enginn tengill á http://setjan.com hérna?
September 21st, 2006 at 12:41
Hann mun koma undir annað… sem er óklárað
September 21st, 2006 at 14:12
Nei Elías, þetta er nú ekki alveg rétt hjá þér…
Þetta var spurning um Coke eða Pepsi. Við skulum vera með staðreyndir á hreinu.
Friðarhöfðinginn leggur kannski til að það verði gefið vatn á Októberfest, hitt er alltof flókið
September 21st, 2006 at 14:24
Heimildarmaður minn hefur greinilega einfaldað málið ansi mikið fyrir mér.
Já það er fínt að gefa vatn á Októberfest. En ég legg til að þar verði jafnframt seldur bjór.
September 22nd, 2006 at 16:05
Getum við ekki notað Pepsi eða Kók?
Hættu nú alveg! Pepsi eða Kók…
Hvað er að Pepsi eða Kók??
Uppköst. Niðurgangur. Höfuðverkur. Hiksti…