Archive for September 2006


Svartur dagur í sögu Stúdentaráðs?

September 20th, 2006 — 7:57pm

Heyrst hefur að brestir séu komnir í samstarf Röskvu og Vöku í Stúdentaráði. Brestirnir munu vera svo alvarlegir að sjálfur formaður ráðsins mun hafa talað um svartan dag í sögu Stúdentaráðs. Deilan ku snúast um það hver hefði átt að redda kókinu með pylsunum í nýnemavikunni.

Fulltrúar Vöku í Stúdentaráði í fyrra lýstu mér sem friðarhöfðinga. Ég er tilbúinn að standa undir þeirri göfugu lýsingu og býð því hér með fram aðstoð mína að leysa úr deilunni um kókið og berja í brestina.

Það hefur verið frábært að fylgjast með því góða starfi sem samvinna Vöku og Röskvu í Stúdentaráði hefur leitt af sér. Það væri því synd að sjá það verða að engu vegna nokkurra kókdósa. Ef svo yrði þá væri hægt að tala um Svartan dag í sögu Stúdentaráðs.

6 comments » | Stjórnmál

Argentína

September 20th, 2006 — 1:00pm

Í gær sótti ég Lonely Planet bók um Argentínu í Bóksöluna. Átæðan er sú að við Guðrún Svava erum stefnum á að fara í smá túr um Argentínu næsta sumar. Ég er strax farinn að iða í skinninu og ekki minkaði það kláðann að fá þessa bók í hendurnar.

5 comments » | Ferðalög

Aflátsbréf

September 15th, 2006 — 12:28pm

Það er gaman að sjá alla virkjannabrjálæðingana og stóriðjutrúarfólkið keppast við að hafna fyrri trú sinni og gerast náttúrverndarsinnar. Ætli þeim verði þó nokkurtímann fyrirgefið. Það þarf að minnsta kosti meira en yfirlýsingar til þess að svo verði. Vonandi teks þeim að sannfæra mig.

Það gæti orðið góður bissness í því að gefa út aflátsbréf fyrir allt þetta synduga fólk. Sumir þyrftu að minnsta kosti að greiða ansi mikið fyrir slík bréf.

2 comments » | Stjórnmál

ÚúúúúúÚÚ…

September 14th, 2006 — 4:29pm

…glymur í húsinu hjá mér. Nágrannakonan(vona að þetta sé kona) er æfa röddina. Nú syngur hún ÍÍííííííÍ. Nú er ekkert annað að gera en að slökkva á græjunum, halla sér aftur og njóta.

2 comments » | Lífið

Rök Vonarstjörnunnar

September 14th, 2006 — 10:18am

Samtal Vonarstjörnunnar við borgarbúa um almenningssamgöngur:

Borgarbúi: Hvað hefurðu á móti almenningssamgöngum?
Vonarstjarnan: Ekkert, borgarbúar eru bara búnir að velja einkabílinn
Borgarbúi: Ég er borgarbúi og mér var aldrei boðið upp á að velja
Vonarstjarnan: Það er vegna þess að það var bara einn kostur í boði, einkabíllinn
Borgarbúi: Er þá hægt að tala um val?

Færum þetta samtal upp á umræðuna um kjörgengi og kosnngarétt kvenna:

Kjósandi: Hvað hefurðu á móti konum?
Vonarstjarnan: Ekkert, kjósendur er bara búnir að velja karlinn
Kjósandi: Ég er kjósandi og mér var aldrei boðið upp á að velja
Vonarstjarnan: Það er vegna þess að það var bara einn kostur, karlar
Kjósandi: Er þá hægt að tala um val?

2 comments » | Stjórnmál

Peningaþvottur

September 14th, 2006 — 8:56am

Einhverntíman var mér sagt að margir umsvifamiklir dópsalar eða þeir sem stunduðu ólöglega atvinnustarfsemi ættu pizzastaði til þess að þvo ágóðann, koma honum inn í kerfið. Penningarnir voru þvegnir með því gefa upp sölu á fleiri pizzum en í raun seldust. Engum datt í hug að selja pizzurnar á tugi eða jafnvel hundruð þúsunda króna, enda hefði það vakið grunsemdir. Sumum þótti reyndar grunsamlegt hve margar pizzur urðu til úr svo litlu hveiti.

Með þessa sögu í huga þá spyr ég hvort ekki sé grunsamlegt að selja ódýrt freyðivín á strípibúllu í miðbæ Reykjavíkur á 150 þúsund krónur? Er verið selja eitthvað meira en freyðivín?

2 comments » | Stjórnmál

Félag framsækinna ungmenna

September 13th, 2006 — 2:40pm

Fyrir stuttu bárust mér þær fréttir að ágætur vinur minn, Stefán Bogi Sveinsson, hygðist bjóða sig fram til formanns Sambands ungra framsóknarmanna. Við þær fréttir taldi ég víst að minn þróttmikli vinnur væri að endurvekja samtökin enda taldi ég samtökin dauð eða að minnsta kosti í dvala.

Í kjölfarið hafði ég samband við vin minn og forvitnaðist um þetta endurvakningarbrölt hans. Í ljós kom að samtökin höfðu verið starfandi undanfarin ár og því ekki um endurvakningu að ræða. Það sem meira var, hann var að bjóða sig fram gegn sitjandi formanni. Ég spurði í framhaldi hvort að kosning hans í embættið væri ekki aðeins formsatriði. Hann sagði svo ekki vera og sagðist í raun eiga litla möguleika á sigri. Ég hváði og klóraði mér í höfðinu.

Ég skil ekki hvernig formaður samtaka sem hafa það að markmiði að láta aðra vita af tilveru sinni gat verið öruggur með endurkjör þegar fólk sem fylgist mikið með stjórnmálum taldi samtökin dauð eða að minnsta kosti í dvala.

Ég nennti reyndar ekki að klóra mér lengi enda mun ég seint skilja framsóknarfólk. Auk þess eru það góðar fréttir að ungt framsóknarfólk skuli ekki vera framsæknara en svo að hafna manni eins og Stefáni Boga.

2 comments » | Stjórnmál

Landráð

September 13th, 2006 — 9:35am

Ég verð að játa á mig landráð. Ég vakti ekki í nótt og kaus Magna okkar.

Comments Off | Lífið

Fyndinn eða hlægilegur

September 12th, 2006 — 9:02pm

Þegar ég renni í gegnum ritmiðla landsins þá verður mér ljóst að hugmyndaauðgi þeirra er ótrúleg. DV hefur nýverið fengið þá hugmynd að búa til topplista í hinu og þessu. Það má búast við að þessir listar verði fastir liðir hjá þeim svo lengi sem blaðið fær hugmyndir að nýjum listum.

Í síðasta blaði birtu þeir lista yfir fyndnast karlmann landsins. Þegar ég skoðaði listann þá var mér strax ljóst að DV gerði ekki greinamun á þeim sem eru fyndnir og hlægilegir. Mér finns mikill munur þarna á milli. Ástþór Magnússon, Geir Ólafsson, Björn Bjarnasons og fleiri sem voru á þessum lista eru hlægilegir. Sumir sem voru á listanum voru reyndar hvorki fyndnir né hlægilegir. Nokkrir á listanum eru fyndnir.

DV fækkaði því með hugsunarleysi sínu mögulegum topplistum um einn: Hlægilegasti karlmaður á Íslandi. En kannski er það vegna manngæsku DV, því það er ekki beinlínis eftirsóknarvert að vera talinn hlægilegur.

Ég spái því að í næstu viku verði listi yfir bestu karl söngvara landsins og að Magni okkar verði efstur.

Comments Off | Fjölmiðlar

Saga frá útlöndum

September 12th, 2006 — 8:50pm

Ég var búinn að lofa sjálfum mér, einhverjum öðum en þó aðallega Guðrúnu Svövu að setja hér inn einhverskonar ferðasögu frá Slóveníu, Feneyjum og Lundúnum. Ferðin stóð frá 19. júní til 4. júlí og var frábær.

Continue reading »

1 comment » | Ferðalög

Back to top