Oct 31

Það er gaman að sitja við gluggan og fylgjast með þröstunum týna blóðrauð berin af Reyniviðinum. Mér skilst að berin verði áfeng þegar þau þau hafa frosið einu sinni. Þrestirnir eru því ef til vill hinir sönnu rónar bæjarins, étandi ber allan daginn. Þeir eru glæsilegri en aðrir rónar sem ég hef séð og syngja auk þess betur.

Oct 30

Nýlega settum við Guðrún Svava saman nokkuð langan lista yfir hluti sem þyrfti að framkvæma áður við gætum lýst heimilið tilbúið og haldið innflutningsteiti.

Um helgina tókst okkur að saxa þó nokkuð á listann. Við settum meðal annars upp fataskáp, hengdum upp spegil og síðsast en ekki síst festum við upp hansahillur á kontórinn. Við gátum því loksins borið bókakassana upp úr geymslunni og raðað bókunum í hillurnar.

Þannig að það styttist á að heimilið verði klárt. Það er kannski ekki seinna að vænna, enda rúmt ár síðan við fluttum inn.

Oct 26

Reglulega reyni ég að skokka stuttan hring, 6,5 km, mér til heilsubótar og skemmtunar. Á þessari stuttu leið minni í gær reyndu þrír ökumenn að aka mig niður á mig á fínu bílunum sínum.

Tveir reyndu að aka á mig á gangbraut. Þetta gerðist eftir að ég hafði stoppað, litið til beggja hliða og gengið úr skugga um að óhætt væri að stíga út á götuna. Ökumennirnir virðast hafa stöðvað fyrir einhverjum öðrum en mér því um leið og ég steig út á götuna þá brunuðu þeir af stað í átt að mér. Þeir snarhemluðu. Ég leit skelkaður framan í þá og hélt svo leið minni áfram.

Sá þriðji reyndi að keyra mig niður þar sem ég sveif í rólegheitum eftir gangstétt. Sá kom á heldur miklum hraða út úr bílaporti án þess að líta í kringum sig. Sá snarhemlaði líka. Ég leit skelkaður á hann. Hann flautaði. Ég hélt ró minni. Ég hélt áfram.

Á ég að taka þetta til mín eða eru bara svona margir ökumenn fífl?

Oct 24

Í köldu vetrarveðri eins og verið hefur að undanförnu er ómetanlegt að eiga góða kuldaúlpu. Sverrir og Jakob vita það enda öfunda þeir mig af henni. Öfundin var svo mikil að þeir fóru að skjóta á mig háðsglósum tengda henni. Ég skil öfund þeirra vel. Þessi úlpa er yndislega hlý og góð.

Oct 19

Um daginn sagði ég ykkur frá því að ég væri byrjaður að sjúga upp í nefið og sagði það veturboða. Í gær gafst ég upp á soginu og snýtti mér. Það er því augljóslega kominn vetur.

Oct 15

Þeir leggja auðvitað allir sitt af mörkum í baráttunni gegn útblæstri gróðurhúsalofttegunda með því að fljúga milli landa á einkaþotunum sínum og halda fundi um það hvernig draga megi úr útblæstri.

Oct 14

Síðastliðinn fimmtudag stóð Stúdentaráð Háskóla Íslands fyrir kröfugöngu(meðmælagöngu) og útifundi á Austurvelli til að krefjast(mæla með) umbóta í málefnum Háskóla Íslands og að stjórnvöld setji sér markvissa, metnaðargjarna og framsýna stefnu í menntamálum Löngu tímabært og frábært framtak hjá Stúdentaráði.

Áhrif og vægi slíkra aðgerða eru alltaf mæld með fjölda þátttakenda. Þeir jákvæðustu(ég) töldu að um 200 manns hefðu tekið þátt, þeir neikvæðustu 100 og þeir meinhæðnustu 15. Þátttakendur voru því einhverstaðar á bilinu 15 til 200 sem er vægast sagt sorglegt.

Á sama tíma var verið að opna nýja verslun IKEA í Garðabæ. Þangað mættu 10.000 manns. Hundraðsinnum fleiri en mættu á Austurvöll.

Á Austurvelli voru í mesta lagi 200 manns. Samtals starfa og nema 11.000 við Háskóla Íslands. Hvar voru þessir 10800, hvar var rektorinn?. Vonandi ekki í IKEA! Fátt afsakar fjarveru þeirra. Það er ekki afsökun að hafa verið að læra, kenna eða rannsaka því aðgerðirnar snérust einmitt um að bæta alla aðstöðu og umhverfi til þessara athafna. Einnar klukkustundar göngutúr var því ekki mikil fórn. Ég vona að þessir 10800 sem voru fjarverandi skammist sín fyrir það og bæti fyrir það með viðveru næst.

Oct 11

Þetta er svoldið fyndið, en jafnframt sorgleg.

Oct 10

…ég meina meðmælum. Eða bara bæði.

Þrátt fyrir að við ætlum að mæla með góðum hlutum þá finnst finnst mér í góðu lagi að við mótmælum helvítis ríkisstjórninni, aumingjaskap hennar og ömurlegri framkomu við Háksóla Íslands í leiðinni.

medmaeli2.jpg

Ég legg einnig til að þið skrifið undir þetta. Þó svo orðalagið sé kannski ekki alveg mér að skapi þá er meiningin góð og það er fyrir öllu.

Drullumst svo öll niður á Austurvöll á fimmtudaginn og meðmælum, mótmælum eða bara ælum. Látum bara á okkur bera og í okkur heyrast!

Oct 10

Mér fannst fréttin um ævintýragjarna köttinn í Kastljósinu í gær alveg dásamleg. Hún toppaði góðan dag.

« Previous Entries