Rónar

Það er gaman að sitja við gluggan og fylgjast með þröstunum týna blóðrauð berin af Reyniviðinum. Mér skilst að berin verði áfeng þegar þau þau hafa frosið einu sinni. Þrestirnir eru því ef til vill hinir sönnu rónar bæjarins, étandi ber allan daginn. Þeir eru glæsilegri en aðrir rónar sem ég hef séð og syngja auk þess betur.

Category: Lífið

3 Responses to “Rónar”

  1. Hannibal

    Hvernig er það, get ég eitthvað notað þessi ber?

  2. Elías Jón

    Örugglega. Það er þó hætt við því að þér verði illt í maganum.

  3. Hildur

    Iss þú hefur greinilega ekki hitt heimilisvinarónann minn, eða rónaheimilisvininn, fyrst þú heldur að fuglarnir syngi best allra róna

Back to top