Umræða síðustu viku um vegagerð er komin út í vitleysu. Nú eru fulltrúar mismunandi landshluta farnir að metast um það hvar flestir deyi eða slasist. Þeim sem tekst að koma upp með hæstu tölurnar telja sig eiga heimtingu á því að þeirra vegur verði tvöfaldaður fyrst. Hversu firrt er það? Ég ætla að rétt að vona að menn gangi ekki lengra í þessari samkeppni. Ef öryggi á vegum væri málefni sem núverandi ríkisstjórn legði einhverja áherslu á þá stæðu þessar umræður ekki yfir. Það væri öryggi á vegunum.
***
Það sannast betur og betur að sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að lækka matarskattinn var vanhugsuð, illa undirbúinn og greinilega tekin í skyndi. Fyrst kom í ljós að þau höfðu ekkert hugsað út í hvaða áhrif þessi breyting hefði á áfengisverð. Nú var að koma í ljós að þau höfðu ekkert hugsað út í gosdrykkina. Er ekki lágmark að slíkar breytingar séu hugsaðir til enda áður en þær eru lagðar fram?
***
Í vikunni tjáðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sig um mikilvægi þess að reisa eins fljótt og auðið er þriggja hæða mislæg gatnamót á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Tveim dögum síðar dúkka fulltrúar sömu flokka upp með þá stórgóðu hugmynd að leggja Sundabraut í jarðgöng að hluta. Í máli þeirra kom einnig fram að Sundabraut væri gríðarlega mikilvæg framkvæmd því hún myndi létta gríðarlega á öðrum umferðaræðum borgarinnar og nefndu þeir sérstaklega fyrrnefnd gatnamót. Er því nema von að ég spyrji: Er þetta fólk ekki í sambandi við sjálft sig?
***
Sjávarútvegsráðherrann er farinn til Bandaríkjanna til þess að bæta fyrir mistökin, sem ákvörðunin um að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni var. Hingað til hefur ráðherrann ekki viljað viðurkenna að hún hafi verið mistök. Mér finnst þó einhvernvegin að þessi ferð hans sé ákveðin viðurkenning af hans hálfu. Það er bara verst að enginn vil tala við hann þarna úti.
***
Formaður og fulltrúar Samfylkingarinnar segja að allir hafi misskilið orð formannsins. Útfrá þessu má draga þá ályktun að Samfylkingarfólk tali eitthvað torskilið og áður óþekkt tungumál. Það er því best að taka ekki mark á orðum Samfylkingarfólks þegar það mælir heldur bíða í einn til tvo daga eftir þýðingunni á orðum þeirra.
***
Í Fréttablaðinu í vikunni sá ég enn eina ástæðuna fyrir því að Ísland eigi að segja sig úr NATO. Nýr yfirmaður herafla NATO var áður yfirmaður fangabúðanna í Guantanamo. Þarf ég að segja meira?