Hugmynd Ómars Ragnarssonar um að endurvekja rúntinn í Reykjavík hljýtur að vera ein þeirra verst ígrunduðu sem fram hafa komið í langan tíma, sérstaklega í ljósi þess að hún kemur frá manni sem er yfirlýstur umhverfisverndarsinni.
Ég er fæddur og uppalinn á Akranesi sem er einn af höfuðstöðum rúntsins(ásamt Selfossi og Keflavík). Á unglingsárum mínum við félagar mínir eflaust tugi, jafnvel hundruði, þúsunda kílómetra. Fólk fór á rúntinn til þess að sýna sig og sjá aðra(í gegnum tvær bílrúður á 30 km/h). Í Reykjavík, þar sem ég bý núna, er nánast ótæmandi úrval kaffihúsa og annarra staða þar sem fólk getur sýnt sig og séð hvort annað( í augliti til auglitis á 0 km/h).
Þegar ég stend frammi fyrir vali á milli þessara tveggja kosta þá vel ég að sjálfsögðu kaffihúsið(helst reyklaust). Ef ég tek umhverfisverndarsjónarmið inn í þá er valið enn einfaldara.








