Mér varð brugðið þegar sá fréttir um að Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, vildi hefja ritskoðun á Internetinu að kínveskri fyrirmynd. Margir vefkrotarar hafa farið mikinn vegna þessa.
Þar sem ég er félagi í Vinstri grænum og var á landsfundi flokksins um helgina en hafði aldrei heyrt minnst á neitt þessu líkt þótti mér ótrúlegt að Steingrímur hefði sagt þetta. Ég skoðaði málið því aðeins betur og komst að því að enginn hafði fyrir því vitna beint í það sem hann sagði í Silfri Egils á sunnudaginn. Ég horfði því á þáttinn.
Í ljós koma að vefkrotararnir höfðu að miklu leiti lagt Steingrími orð í munn og gert honum upp skoðanir. Hér er bein tilvitnun í þau orðaskipti sem Steingrímur og Egill áttu um þetta mál í þættinum:
Egill:
Myndir þú vilja að það yrði gripið til ráðstafanna til að að takmarka klám á netinu?Steingrímur:
Já alveg absolút ég vil stofna netlögreglu sem hefði meðal annars það hlutverk, og ekki síst, að koma í veg fyrir klámdreifingu og ég vil ekki sjá þessa nektar og súlustaði.(1:30:10)
Þetta var það eina sem þeim fór á milli um þetta mál. Steingrímur útskýrir þessi ummæli sín betur í Fréttablaðinu í gær. Egill vakti máls á þessu við Steingrím í framhaldi af umræðum fyrr í þættinum þar sem Steinunn Valdís Óskarsdóttir lýsti því yfir á eindreginn hátt að hún vildi að komið yrði upp klámsíu á netið á Íslandi:
Egill:
Mér finnst við geta eiga kröfu til þess, í ljósi þessara samræða, að það verði skorinn upp herör gegn klámi og að hér verði sett upp risastór sía á netið.Steinunn Valdís:
Veistu? Ég held að þú hafir hitt naglann á höfuðið þarna.(0:58:25)
Ég hlýt því að velta því fyrir mér hvort hinir ágætu vefkrotarar séu að rugla saman Steingrími og Steinunni?








