Eldsnemma í fyrramálið held ég til Chisinau, höfuðborgar Moldóvu. Mér skilst að hún sé líka höfuðborg evrópskra hnakka. Ég mjög spenntur að sjá hvort kommarnir sem ég er að fara að heimsækja séu hnakkar.
Ég, eins og Ásgeir, er kominn með nóg af því hvernig fjölmiðlar velta sér endalaust upp úr skoðanakönnunum, og er ég þó stjórnmálafræðinemi. Ég trúi ekki að öll umfjöllun fjölmiðla um komandi Alþingiskosningar eigi að snúast um skoðakannanir. Ekki eru stjórnmálamennirnir skárri. Á vefsíðum sínum tala þeir ekki um annað en skoðakannanir.
Ég vona að það sé ekki til of mikils mælst að fjölmiðla- og stjórnmálamenn dragi höfuðið út úr afturendanum á sér og fari að fjalla um það sem kosið verður um í vor.
Fjölmiðlar tala oft hátíðlega um sjálfa sig og segjast vera fjórða valdið. Nú er kominn tími til þess að þeir standi undir þeirri ábyrgð sem slíku valdi fylgir og fari að fjalla um málefnaáherslur þeirra flokka og frambjóðenda sem í framboði verða til Alþingis. Að sama skapi mættu stjórnmálmenn fara tala meira um það hvað þeir ætli að gera hljóti þeir sæti á Alþingi í stað þess að velta endalaust fyrir sér möguleikum sínum á að komast þangað.
Því verður ekki neitað að byltur helgarinnar hafa tekið nokkurn toll af mér. Fyrir utan harðsperrurnar sem eru alltaf fylgifiskar nýstárlegrar hreyfingar er líkami minn þakinn marblettum.
Skemmtilegasti marbletturinn er á óæðri endanum. Hann hlaut ég þegar ég var að fara úr stólalyftunni og datt beint á bossan. Þegar ég fer í sturtu í ræktinni á eftir þá eiga örugglega einhverjir eftir að giska á að ég sé nýsloppin úr fangelsi.
Það er athyglisvert að sjá hvernig sumar bloggvitsbrekkurnar bregðast við forsíðunni á Vinstri - málgagni Unga vinstri-grænna. Ég rakst til dæmis á eftirfarandi athugasemd við þessa skemmtilegu færslu:
„Forsíða ung-vinstrigrænna er ógeðfeld og sýnir hve lágt þeir leggjast og hve “siðferðisgildi” þeirra eru mikil ímyndun.“
-Sveinn V. Ólafsson

Þar sem ég er annar af tveimur ritstjórum umrædds málgagns og einn af hugmyndasmiðum forsíðunnar þá hlýt ég að taka allar athugasemdir við hana til mín. Það er rétt hjá Sveini að siðferðisgildi mín eru mín ímyndun. Ég er hins vegar ósammála honum um að forsíðan sé ógeðfeld. Í fréttatilkynningu sem við sendum út vegna útgáfunnar kemur fram hvaða hugmynd liggur að baki forsíðumyndinni:
„Forsíðu blaðsins prýðir teikning eftir Ástu Márusdóttur. Myndin táknar draumkennda framtíðarsýn: Yfirgefið álver, fagran dal, sólarupprás og kapítalistasvínið þrætt upp á grilltein. Myndin ber að sjálfsögðu vott um sjálfsgagnrýnið skopskyn meðlima Ungra vinstri-græna.“
En nógu um forsíðuna, því blöð verða ekki dæmd á útlitinu einu saman. Fólk ætti því að lesa það sem leynist á bak við þessa ógeðfeldu/fallegu forsíðu. Blaðinu hefur nú þegar verið dreift víða en það má einnig nálgast í rafrænu formi hérna.
Við Guðrún Svava eru komin aftur til höfuðborgarinnar eftir helgardvöl í höfuðstað Norðurlands, eða menningarhöfuðborg Íslands eins heimamenn þar segja.
Ég verð að játa að við fórum að mestu á mis við alla „æðri“ menningu á Akureyri. Við gægðumst reyndar inn um glugga á listasöfnum og gallerýum, sem voru einhverra hluta vegna öll lokuð þegar okkur bar að. Léleg tímasetning hjá okkur býst ég við.
Við fórum þó ekki á mis við hina alþýðlegu menningu bæjarins. Við prófuðum flest kaffi- og ölduhús bæjarins auk tveggja veitingastaða. Maturinn var sæmilegur en ekki stórkostlegur. Flest vínveitingahúsin fá plús fyrir gott úrval af bjór en mínus fyrir lítið úrval af léttvínum.
Það sem dró okkur þó fyrst og fremst til Akureyrar var fjallið, Hlíðarfjall. Þar gerði ég einmitt tilraun til þess að standa undir titlinum „snjóbrettatarfur“. Eftir nokkrar ævintýralegar tilraunir til að standa undir þeim titli þá uppskar ég vissulega titil. Ég uppskar hinn háðulega titil „byltan“. En ég er bjartsýnn og segi bara að fall sé fararheill.
En allt í allt dásamleg helgi á Akureyri. Það er að sjálfsögðu fyrst og fremst góðum félagsskap að þakka þó að aðstæður hafi vissulega ekki skemmt fyrir.
Eftir að hafa lesið reglulega í nokkra mánuði bloggsíður Péturs Gunnarssonar, Björns Inga Hrafnssonar og Steingríms Sæværrs Ólafssonar hef ég ákveðið að segja skilið við Vinstrigræn og ganga í Framsóknarflokkinn.
Af hverju áttu að kjósa Framsóknarflokkinn? 10. tilvitnanir í Framsóknarmenn:
10. Hann vill lækka skólagjöld við Háskóla Íslands.
9. Hann hefur stöðugt efnahagslíf í fyrirrúmi, þannig að fyrirtæki og einstaklingar geti gert áætlanir sem hægt er að byggja á.
8. Hann er á móti kvótkerfinu(a.m.k. séreignarréttinum sem er innbyggt í það)
7. Hann vill gjaldfrjálsan leikskóla
6. Hann vill auka fjölbreytni atvinnulífs.
5. Hann tryggir fólki áhyggjulaust ævikvöld.
4. Hann hugsar vel um öryrkja
3. Hann vill draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda sem nemur 3/4
2. Hann fer varlega í virkjanaframkvæmdir og umgengst náttúruna af varúð og virðingu.
1. Þurfi Íslendingar að taka afstöðu til innrásar í Íran mun hann tryggja að málið fari fyrir utanríkismálanefnd Alþingis sem tekur ákvörðun í samráði við Utanríkisráðherra.
Þetta hljómar allt fallega. Af hverju áttu þá ekki að kjósa Framsóknarflokkinn? Jú, vegna þess að þú ert ekki svo vitlaus trúa þessu.
Guðrún Svava er snjóbrettagella. Allt frá því við byrjuðum saman, fyrir rúmum fjórum árum, hefur hún ítrekað reynt að fara með mig upp í fjöll til að kenna mér á snjóbretti. Það hefur aldrei gengið eftir.
Ástæðan er ekki sú að ég hafi verið tregur til heldur hafa aðstæður, aðallega veðurfarslegar, komið í veg fyrir það. Annað hvort hefur ekki verið neinn snjór eða of mikill snjór. Nú stefnir allt í að ég komist á bretti um helgina(7,9,13) því um helgina er förinni heitið til Akureyrar.
Í þetta sinn er mjög bjartsýnn á að Guðrúnu Svövu takist loksins ætlunarverk sitt. Ekki skemmir fyrir að ég heyrði aðstæðum í Hlíðarfjalli um síðastliðna helgi lýst með eftirfarandi orðum: „Betra en Aspen!“. Það stefnir því í að ég verði orðinn snjóbrettatarfur áður en ég veit af. Nema sumarið skelli allt í einu á.
Eru Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn búnir að játa ósigur sinn í komandi kosningum og strax byrjaðir í stjórnarandstöðu? Miðað við umæli og athafnir ráðherra ríkisstjórnarinnar á undanförnu þá gæti maður haldið það.








