Apr 30

Kosningabarátta er alltaf svoldið spes. Meðvirknin innnan hvers frambjóðendahóps vex dag frá degi og verður á endanum alveg út úr kortinu. Allir hinir eru frekar leim en við auðvitað mest töf með mesta landrisið undir okkur. Meðvirknin vex og vex alveg þangað til úrslitin verða ljós. Þá kemur spennufallið. Í kjölfarið fara allir að tala við hina flokkana, sem voru og eru leim, og segja þeim hvað þeir séu töff en allir hinir leim.

Apr 30

Ung vinstri-græn í Reykjavík voru að senda frá sér mjög góða ályktun þar sem bent er á og hvatt til úrbóta á tvískinnungshætti Sjálfstæðisflokksins í umhverfismálum sem ég benti nýlega á. Ályktunina má lesa hér.

Apr 30

Það er ljótt að sparka í dauða kind. Enn verra er að horfa upp hana sparka í sig sjálfa(hvernig sem það er nú hægt).

Hann er farinn að há mér aumingjahrollurinn sem ég fæ af því að fylgjast með framsóknarbloggurunum blaðra út í hið óendanlega um að Jónína Bjartmarz og Guðjóns Ólafur Jónsson hafi nú ekki gert neitt rangt.

Ég var nú allan tímann á því að þau hefðu ekki gert neitt rangt. En vegna þess hve framsóknarbloggararnir leggja sig mikið fram við að sverja allt af þeim er ég farinn að halda að það hafi eitthvað óeðlilegt átt sér stað.

Ég kemst stundum ekki hjá því að vorkenna Framsóknarflokknum.

Apr 29

Guðlaugur Þór Þórðarsons, oddviti Sjálfstæðisflokksins í norðurkjördæmi Reykjavíkur, hlýtur að vera önungasti frambjóðandinn í komandi Alþingiskosningum.

Sjálfstæðisflokkurinn beinlínis fælir frá sér atkvæðin með því að senda Guðlaug Þór hvað eftir annað í sjónvarpið úrillan, önugan og ofurpirraðan. Ég hef ekkert á móti því að Sjálfstæðisflokkurinn fæli frá sér atkvæði, reyndar þvert á móti, en það er bara of pínlegt að horfa upp á þetta aftur og aftur.

Ég finn til með fólki þegar það kemur svona illa fyrir, sama hvaða flokki það er í. Það er augljóst að Guðlaugur er útkeyrður. Ég ætla því að gefa Sjálfstæðismönnum það góða ráð að senda Guðlaug Þór í dekurdag með nuddi og öllu. Hann þarfnast þess.

Það má reyndar benda kosningastjórum allra flokka að hugsa vel um frambjóðendurna sína þessar síðustu vikur fyrir kosningar.

Apr 28

Þessa dagana er ég svo „heppinn“ að fá Morgunblaðið frítt heim til mín. Reyndar hef ég blendnar tilfinningar til þessa. Auðvitað er fínt að fá Moggan frítt og allt það en þessu fylgja þó ákveðnir gallar. Einn er auðvitað sá að blaðabunkinn verður tvöfallt stærri sem kallar á tvöfallt fleiri ferðir í blaðgáminn. Þetta er svosem í lagi því það versta er að þetta fyrirkomulag kallar á tvöfallt meiri tíma til dagblaðalesturs sem er mjög neikvætt fyrir mann sem á að vera að læra fyrir próf. En nóg um þetta.

Að undanförnu hefur Mogginn kynnt nýja frambjóðendur fyrir lesendum. Í þættinum „Nýjir frambjóðendur“ eru frambjóðendur spurðir ýmissa spurninga sem ætlað er að varpa ljósi á það hvaða manneskju þeir hafa að geyma. Ein af þeim er eftirfarandi spurning: „Fyrsta mál sem þú vilt koma á dagskrá?. Spurningunni er greinilega ætlað að draga fram hvaða mál brennur helst á frambjóðendunum og hvaða pólitík þeir aðhyllast.

Í Mogganum í dag er Ármann Kr. Ólafsson kynntur til leiks sem nýr frambjóðandi. Í ljós kemur m.a. að Ármann er uppalinn á Akureyri og hefur áhuga á veiðum og skíðum og að sé viss um að Alþingi sé áhugaverður vinnustaður. En þegar kemur að spurningum sem fjalla um pólitík þá verður Ármann eitthvað feiminn. Svo feiminn reyndar að hann svarar spurningunni um fyrsta málið á eftirfarandi hátt: „Það gef ég ekki upp núna“. Hann er semsagt búinn að ákveða hvaða mál hann mun leggja mesta áherslu á ef hann kemst á þing en vill ekki gefa það upp. Þetta finns mér vera mjög furðulegt, jafnvel ólýðræðislegt, enda er ég fyrir vikið engu nær um það afhverju ég ætti að kjósa Ármann á Alþingi.

Apr 28

Á nýafstöðnu þingi var ekki nægur vilji til þess að viðurkenna táknmál sem tungumál heyrnarlausra og frumvarp þess efnis dagaði því upp í nefnd. Í þessari ágætu grein fjallar Steinunn um þetta mál.

Í kvöldfréttum Sjónvarpsins var frétt sem fjallaði um heyrnarlausa og var hún textuð. Mér finnst það vera ferlega hallærislegt að einungis fréttir um heyrnarlaust fóllk séu textaðar. Það eins allar aðrar fréttir komi heyrnarlausum ekki við. Auðvitað eiga allar fréttir að vera textaðar, reyndar allt sjónvarpsefni. Það er fáránlegt að halda einum þjófélagshópi út úr samfélaginu og þeirri umræðu sem þar er fram á þennan hátt.

Það ætti að verða fyrsta verk nýs þings að tryggja heyrnarlausum full mannréttindi og viðurkenna táknmálið sem móðurmál þeirra.

Apr 27

ladalogg.jpg
Hver ákvað að hafa Alþingiskosningar á þessum tíma, í miðjum prófum? Djöfull hlýtur hann að hafa mikið á móti því að námsmenn kjósi. Hann hefur væntanlega verið einn af þeim sem lætur hugsandi fólk fara í taugarnar á sér.

Apr 25

Ég vil vísa ykkur á þrennt:
Hvernig á að berja á umhverfiskommum?
Að brenna réttu peningana
Um vistvernd

Apr 25

Það er athyglisvert að sjá hvernig talsmenn ríkisstjórnarflokkanna hafa lagst í sagnfræðirannsóknir nú skömmu fyrir kosningar. Í stað þess að tala um stefnu sína og verk í nútímanum og nálægri fortíð þá tala þeir um stefnu stjórnmálaflokka sem eru ekki lengur starfandi og eru reyndar löngu hættir.

Er staða stjórnarflokkanna virkilega svo slæm að þeir treysta sér ekki til að tala um eigin verk eða stefnu, já eða gagnrýna stefnu þeirra stjórnmálaflokka sem eru starfandi í dag?

Ég þarf reyndar ekki að leggjast í neinar sagfræðirannsóknir til þess að benda á afglöp og vitlausar, og oft á tíðum mjög skaðlegar, ákvarðanir núverandi ríkisstjórnar því að afleiðingar þeirra blasa við okkur í nútímanum. Hér eru nokkur dæmi:

• Íraksstríðið - 650.000 óbreyttir borgarar látnir.
• Ofurvextir
• Ofurverðbólga
• Biðlistar - T.d. núna á BUGL
• Skammarleg framkoma við aldraðra og öryrkja - „öryrkjamálið“ er gott dæmi
• Sjúklingaskattar - já það kostar að veikjast
• Aukin skattbyrði þeirra tekjulægstu - í þágu hinna tekjuhærri auðvitað
• Misskipting hefur aukist - sérstaklega frá 1995
• Kynbundinn launamunur hefur staðið í stað frá 1994
• Mannréttindabort gagnvart meðlimum Falun Gong og örðum sem reyndu að mótmæla mannréttindabrotum Kínastjórnar á meðan heimsókn Jiang Zemin forseta Kína stóð.
• Gríðarlegur viðskiptahalli - 150 miljarðar á árunum 2004-2006
• Skuldir heimilana hafa vaxið gríðarlega - voru 80% af ráðstöfunartekjum heimilana árið 1990 en 200% árið 2006

Það skal reyndar viðurkennast að áhugi stjórnarliða á sagnfræðirannsóknum og sagnfræðitúlkunum skýrist að miklu leiti þegar þetta er lesið.

Apr 25

Ég verið að velta fyrir mér kolefnisjöfnunarsjóðnum Kolviði.

Grunnhugmyndin er frábær: Ef þú neyðist til að menga þá áttu að reyna að bæta fyrir það á einhvern hátt. Í tilfelli Kolviðar bætir maður mengun sína með skórækt. Með þessari hugmynd er höfðað til einstaklingsins og hann hvattur til að vera meðvitaður um gjörðir sínar og ábyrgur fyrir þeim.

Sú mynd sem mér hefur birst í fréttum og umfjöllun um Kolvið er ekki alveg í takt við grunnhugmyndina heldur eitthvað þessa leið: Ég get mengað því að ég get kolefnisjafnað mig. Þetta er langt frá upprunalegu hugsuninni, sem meðal annarra Joe Strummer, hélt á lofti. Í þessu felst ekki að einstaklingar taki ábyrgð á gjörðum sínum heldur þvert á móti að þeir geti firrt sig ábyrgð í krafti fjármagns. Þessi hugmynd minnir mig á aflátsbréf Kaþólsku kirkjunnar á sínum tíma.

Ég vona, og reyndar fullviss um það, að sú mynd sem hefur birst mér af Kolviði sé kolröng. Ég er viss um stofnendur Kolviðs höfðu grunnhugmyndina í huga við stofnun sjóðsins. Það er þó vert að benda á hversu auðvelt er að misnota sjóði eins og Kolvið á þann hátt að hann vinni í raun gegn sínum upphaflegu markmiðum.

« Previous Entries