Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað

Það er athyglisvert að sjá hvernig talsmenn ríkisstjórnarflokkanna hafa lagst í sagnfræðirannsóknir nú skömmu fyrir kosningar. Í stað þess að tala um stefnu sína og verk í nútímanum og nálægri fortíð þá tala þeir um stefnu stjórnmálaflokka sem eru ekki lengur starfandi og eru reyndar löngu hættir.

Er staða stjórnarflokkanna virkilega svo slæm að þeir treysta sér ekki til að tala um eigin verk eða stefnu, já eða gagnrýna stefnu þeirra stjórnmálaflokka sem eru starfandi í dag?

Ég þarf reyndar ekki að leggjast í neinar sagfræðirannsóknir til þess að benda á afglöp og vitlausar, og oft á tíðum mjög skaðlegar, ákvarðanir núverandi ríkisstjórnar því að afleiðingar þeirra blasa við okkur í nútímanum. Hér eru nokkur dæmi:

• Íraksstríðið - 650.000 óbreyttir borgarar látnir.
• Ofurvextir
• Ofurverðbólga
• Biðlistar - T.d. núna á BUGL
• Skammarleg framkoma við aldraðra og öryrkja - „öryrkjamálið“ er gott dæmi
• Sjúklingaskattar - já það kostar að veikjast
• Aukin skattbyrði þeirra tekjulægstu - í þágu hinna tekjuhærri auðvitað
• Misskipting hefur aukist - sérstaklega frá 1995
• Kynbundinn launamunur hefur staðið í stað frá 1994
• Mannréttindabort gagnvart meðlimum Falun Gong og örðum sem reyndu að mótmæla mannréttindabrotum Kínastjórnar á meðan heimsókn Jiang Zemin forseta Kína stóð.
• Gríðarlegur viðskiptahalli - 150 miljarðar á árunum 2004-2006
• Skuldir heimilana hafa vaxið gríðarlega - voru 80% af ráðstöfunartekjum heimilana árið 1990 en 200% árið 2006

Það skal reyndar viðurkennast að áhugi stjórnarliða á sagnfræðirannsóknum og sagnfræðitúlkunum skýrist að miklu leiti þegar þetta er lesið.

Category: Stjórnmál

2 Responses to “Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað”

  1. Lalli

    Mættir bæta við listann að spáð hefur verið 1% hagvexti í ár. Ekki er það sérstaklega gæfulegt, miðað við hvað þessi ríkisstjórn stærir sig mjög af góðum árangri í efnahagsmálum.

  2. Elías Jón

    Það má eflaust bæta endalaust á þennan lista.

Back to top