Umhyggja

Guðlaugur Þór Þórðarsons, oddviti Sjálfstæðisflokksins í norðurkjördæmi Reykjavíkur, hlýtur að vera önungasti frambjóðandinn í komandi Alþingiskosningum.

Sjálfstæðisflokkurinn beinlínis fælir frá sér atkvæðin með því að senda Guðlaug Þór hvað eftir annað í sjónvarpið úrillan, önugan og ofurpirraðan. Ég hef ekkert á móti því að Sjálfstæðisflokkurinn fæli frá sér atkvæði, reyndar þvert á móti, en það er bara of pínlegt að horfa upp á þetta aftur og aftur.

Ég finn til með fólki þegar það kemur svona illa fyrir, sama hvaða flokki það er í. Það er augljóst að Guðlaugur er útkeyrður. Ég ætla því að gefa Sjálfstæðismönnum það góða ráð að senda Guðlaug Þór í dekurdag með nuddi og öllu. Hann þarfnast þess.

Það má reyndar benda kosningastjórum allra flokka að hugsa vel um frambjóðendurna sína þessar síðustu vikur fyrir kosningar.

Category: Stjórnmál

3 Responses to “Umhyggja”

  1. siljarut

    sjálfsstæðisflokkurinn er mjög ríkur af fráfælandi mönnum. fremstir í flokki finnst mér vera herra smeðja, sem gengur einnig undir nafninu sigurður kári, og herra óskýrmæltur, sem sumir þekkja sem pétur blöndal.

  2. Hildur Edda

    Já það er alltaf eins og hann sé pirraður og þunnur..!

  3. Elías Jón

    Sendum Pétur líka í dekur.

    „Pétur í dekur!“ Töff slagorð.

Back to top