Ég á erfitt með að verjast aumingjahrolli þegar fólk notar vínmenningarrökin fyrir því að lækka eigi álögur á og auka aðgang að áfengi. Hvað er vínmenning og hvernig mælir maður hvaða vínmenning er betri?
Reyndar heyrði ég ennþá vonlausari rök í dag. Þau voru eitthvað á þá leið að fólk muni bara leggjast í smygl eða jafnvel fara að brugga sjálft ef við lækkum ekki álögur á og aukum aðgengi áfengi.
Eflaust eru mörg voða fín rök fyrir því að leyfa eigi auglýsingar, auka aðgengi að og lækka álögur á fíkniefnum, sem áfengi og tóbak eru. En ef fólk vill auka aðgengi að og lækka álögur á áfengi og öðrum fíkniefnum þá verður það bara að segja það og viðurkenna að því muni fylgja afleiðingar.
Verð á áfengi mun örugglega lækka og það fást víðar. Það er að sjálfsögðu gott og blessað fyrir þá sem telja sig hafa fulla stjórn á fíkninni. Hins vegar verður erfiðara fyrir marga að hafa stjórn á henni. Fleiri munu neita áfengis og neysla þess mun aukast og ala af sér fleiri sem ekki hafa stjórn á fíkninni. Af þessu mun svo leiða aukning á sjúkdómum sem tengjast áfengisdrykkju. Já, og svo ekki gleyma vínmenningunni auk þess smygl og heimbrugg mun dragast saman.