Sveigjanleg nýting á rökhugsun
Í opinberri umræðu sannast það því miður aftur og aftur að nýting krata á rökhugsun er mjög sveigjanleg þegar þeir skilgreina og ræða samfélagsverkfræðileg markmið sín. Þetta á reyndar einnig við um íhaldsmennina en þeirra samfélagsverkfræðilegu markið eru reyndar svo gjörsamlega snarhoppandi galin að samkvæmt persónuverfræðilegum útreikningum mínum þá fela vangaveltur um þau í sér algjöra sóun.
Þegar kratar ræða Evrópusambandsmál er eins og það slokkni á allri rökhugsun sem hin almenni krati hefur stundum sýnt, reyndar allt of sjaldan, að hann býr yfir. Nú hafa kratarnir komist að því að í því sé fólgin einangrunarstefna að vilja ekki að ganga í Evrópusambandið. Þegar betur er að gáð sjá auðvitað allir að þessu er á margan, ef ekki allan, hátt öfugt farið.
Sem aðilar að Evrópusambandinu myndu Íslendingar vissulega verða nánir mörgum af aðildarríkjum sambandsins, en þeir geta það nú reyndar nú þegar. Aftur á móti myndi innganga fela í sér frekari einangrun frá löndum utan Evrópusambandsins vegna þeirra tollamúra sem eru utan um Evrópubandið og ýmissa reglna sem tengjast þeim.
Einangrunartali kratanna má því líkja við tilraun til þess að reka niður nagla með með höfuið á undan. Því miður er það ekki í fyrsta skipt sem þeir gera slíkt.
Með því að standa utan Evrópusambandsins felast einmitt miklu betri tækifæri til þess að rækta samband við ríki víðs vegar um heiminn. Það er bara undir valdhöfum komið að nýta þau.
Category: Uncategorized
September 30th, 2007 at 17:22
Það ER einangrunarhyggja og afturhaldsræfildómur að vilja ekki í ESB!!!
September 30th, 2007 at 19:17
Rök væru fín Hildur…
September 30th, 2007 at 20:40
Fokk, ég er búin að rökstyðja þetta svo milljón sinnum. Ég gæti skrifað heila ritgerð en held að hún væri betur sett annars staðar en í kommentakerfið hans Elíasasr.
October 1st, 2007 at 12:10
Fyrst þú ert búin að rökstyðja þetta svona oft, þá hlýturðu að vera í æfingu og gætir léttilega hent fram nokkrum eitilhörðum staðreyndum til að þagga niður í okkur afturhaldsræflunum.
Við erum líka búin að rökstyðja þetta svona milljón sinnum. En eitthvað hefur rökstuðningur okkar farið framhjá þér, eins og rökstuðningur þinn hefur eitthvað farið framhjá mér. Býst ég við. Hvernig ætlarðu að sannfæra okkur um ágæti ESB ef þú fleygir bara einhverjum gífuryrðum í kommentakerfi annarra, í stað þess að rökstyðja mál þitt?
October 1st, 2007 at 14:10
Ég er ekki að reyna að sannfæra neinn. Ég veit að vitinu verður ekki komið fyrir ykkur. Þess vegna er ég líka á móti VG!
Hvað er annars málið með að listin að vera með dólgskap í kommentakerfi annarra er svona vanmetin?
October 1st, 2007 at 15:16
ESB = Einangrunarsamband Evrópu
Þið verðið að fara að víkka sjóndeildarhringinn. Það þýðir ekki að horfa alltaf til ESB í leit að lausnum við öllum vandamálum. Þið eruð verri en verstu öfgatrúmenn.
October 1st, 2007 at 16:32
Jú jú það eru náttúrulega alltaf til Bandaríkin líka.
October 1st, 2007 at 18:16
Ertu semagt að staðfesta það sem við erum að segja… að Einangrunarsambandið og ríki þess vilji ekki eiga samskipti við ríki utan þess?
October 2nd, 2007 at 09:23
Æi Elías þetta er nú meiri ekkisens djöfulsins dómadags vitleysan alltaf hreint í þér!!!!
October 2nd, 2007 at 09:38
Já, maður á auðvitað ekki að velta þessu sambandi fyrir sér.