Archive for November 2007


Mennt er máttur!

November 29th, 2007 — 9:19am

1.desweb.jpg

Comment » | Stjórnmál

Útburður

November 20th, 2007 — 10:43pm

Þessi síða virðist vera að þróast út í að verða einhverskonar farvegur fyrir samfélagslegan pirring minn. Það hlýtur að vera pirrandi. Hér verður gerð tilraun til jákvæðni.

Á sunnudaginn höfðum við Guðrún Svava bárum við Dagfara út í dásamlegu en köldu veðri. Við höfðum því fullgilda afsökun fyrir því að hnýsast í bakgörðum íbúa í miðborginni. Það eru ótrúlegir leyndardómar sem búa í bakgörðum miðbæjarins, sérstaklega við Grettisgötu og Njálsgötu. Ef þið viljið kynnast þeim þá verðið þið bara að finna ykkur eitthvað til að bera út.

Talandi um Dagfara. Ég verð að hrósa ritnefnd Dagfara, sérstaklega auðvitað Þórði „krata“ Sveinssyni, fyrir þrusu gott blað.

Comment » | Lífið

Mengum Ísland með grænni orku

November 12th, 2007 — 11:28pm

Í hnaddrænnar umhverfisverndar hef ég ákveðið að ganga til liðs við Pétur Blöndal. Saman munum við berjast fyrir því að hver einasti foss og hver einasti hver landsins verði virkjaður. Mengum fokking ísland með grænni orku!

Comments Off | Lygi, Stjórnmál

Jörðin er flöt

November 4th, 2007 — 2:13pm

Nýfrjálshyggjumenn eins og Sigurður Kári Kristjánsson og Friðbjörn Orri Ketilsson hafa svo furðulega sýn á lífið, heiminn og samfélagið að það kæmi mér ekki á óvart ef þeir segðu að jörðin væri flöt. Í dag sögðu þeir báðir að kynbundinn launamunur væri ekki til.

Ef þeir fengju að ráða þá væri lífið auðvelt, þá væru engin samfélagsleg vandmál til. Þeirra pólitík mætti alveg eins kalla strútspólitík. Í stað þess að horfa á samfélagið sem heild og taka á þeim vandamálum sem blasa við þá sjá þeir ekki lengra en eigið nef nær - rétt eins og þeir væru búnir að stynga höfðinu ofan í sandinn. Þá segir það sig auðvitað sjálft að öll vandamál hverfa.

1 comment » | Stjórnmál

Back to top