Gleðilegt og farsælt nýtt ár og takk fyrir það sem er að líða!
Rússarnir eru komnir aftur í fréttirnar. Nýjustu fréttinar eru af auknum hernaðarumsvifum þeirra. Að undanförnu hefur rússneski flugherinn rofið lofhelgi allra Norðurlandanna, nem Svíþjóðar, auk þess sem sést hefur til rússneskra kafbáta við strendur Norður-Noregs.
Áhugamenn um hernaðarumsvif á Íslandi og við Íslandsstrendur hafa fyllst Þórðargleði við þessa fréttir og benda nú á það með stríðsglampa í augunum á að þarna sé Ógnin. Þarna er réttlæting fyrir hernarbrölti á Íslandi.
Þar sem ég hugsa í lausnum en ekki vandamálum þá er ég að sjálfsögðu með lausn á þessu. Í stað þess að standa í þessu betli við NATO-þjóðirnar um að þær komi hingað til landa og fljúgi nokkra hringi á herþotunum sínum þá semjum við bara við Rússana.
Þar sem Rússarnir eru á annað borð að fljúga hérna um þá ættu þeir ekki að eiga í nokkrum vandræðum með að stunda lofthelgiseftirlitið fyrir okkur í leiðinni. Með þessu móti yrðu herþotur þeirra ekki lengur ógn heldur vinveittar vélar á eftirlitsflugi.
Jólin eru búin að vera eins og þau eiga að vera. Ofát, munúðarlífi og leti hafa einkennt þessi jól sem fyrri jól. Sem betur fer er ég ekki kristinn og get því framið þessar þrjár af sjö dauðasyndum kristninnar án ótta eða samviskubits.
Það hlýtur að vera erfitt að vera kristinn um jólin. Vonandi fer biskupinn ekki að agnúast út í þessa algengu jólahegðun þjóðarinnar og eyðileggja þannig fyrir okkur jólin. Hann ætti frekar að bjóða upp á syndaaflausnir.
Mörgum hefur orðið tíðrætt um væntanlegt auglýsingahlé í áramótaskaupinu. Sumir telja það vera helgispjöll, aðrir segja það kærkmið hlé til klósettferða en flestum er drullusama.
Það hefur lengi tíðkast í minni fjölskyldu að hlusta á jólamessuna í útvarpinu. Á mínum yngri árum hlustaði ég með lotningu á helgislepjuna vella út úr prestunum, en eitthvað minna fer fyrir þeirri lotningu í dag. Engu að síður er haldið í þessa hefð og á messuna hlusta ég.
Þessi messa tekur dágóðan tíma og því ekki auðvelt að sitja og hlusta með fulla athygli allan tímann. Bæði fyrr og nú hefði því verið kærkomið að það væri auglýsingahlé í miðri messunni. Þá gæti maður skroppið á klóið eða nýtt tímann til þess að enduheimta athygli sína.
Það er jafnvel spurning hvort að Þjóðkirkjan gæti ekki fengið þetta auglýsingapláss á afsláttarkjörum enda hefur hún verið dugleg við að auglýsa í útvarpi að undanförnu.
Já, gleraugun eru fundin. Guðrún Svava fann þau í jólahreingerningunni. Voru búin að koma sér vel fyrir í sófastólnum, til hliðar við pulluna undir armpúðanum. Þau voru reyndar svoldið beygluð þannig að ég þurfti að gera mér ferð til sjótækjafræðings til þess að láta stilla þau.
Þeim líður nú vel á nefinu á mér og augun er líka ánægð.
Litla fjölskyldan á Eiríksgötu 33 er búin að fá jóltré.
Að þessu sinni varð lítill og fallegur normalsþynur(hvernig er þetta eiginlega skrifað)norðmannsþinur rétt eins og í fyrra. Tréð keyptum við á sama stað og í fyrra, hjá jólatrjáasölu Flugbjörgunarsveitarinnar við Flugvallarveg.
Í gær lauk prófum og jólagjafakaupum. Ég held að ég sé bara tilbúin í eitt stykki jól. Ég á reyndar eftir að baka tvær sortir af smákökum auk þess að þrífa, skúra og skreyta með Guðrúnu Svövu. En þetta er auðvitað bara hluti af jólunum.
Árni Matthiesen, sem staðgengill dómsmálaráðherra, skipaði í dag Þorstein Davíðsson fyrverandi aðstoðarmann dómsmálaráðherra dómara við Héraðsdóm Austurlands og Héraðsdóma Norðurlands eystra.
Nefnd sem hefur það hlutverk að meta hæfi umsækjenda taldi þrjá umsækjendur vera hæfari en Þorstein, en alls voru umsækjendur fimm. Nefndin skiptir umsækjendum í fjóra flokka: óhæfur, hæfur, vel hæfur og mjög velhæfur. Þorsteinn og einn annar umsækjandi voru metin hæf. Hinir þrír voru metnir mjög vel hæfir.
Árni segist ekki vera sammála nefndinni. Hann segir Þorstein hafa fjöþættari reynslu en aðra umsækjendur. Aðspurður segir Árni þá reynslu meðal annars felast í störfum Þorsteins sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra. Að auki bendir Árni, réttilega, á að það sé ráðherra sem skipi í embættið ekki matsnefndin.
Eftir stendur tvennt. Ráðherra skipar þá sem hann vill skipa. Matsefndin er tilgangslaus.
Ég vil byrja á því að þakka bankanum mínum, Glitni, fyrir jólagjöfina. Hún var nætum því alveg eins og í fyrra, ofvaxinn jólaórói af hurðaskelli. Í fyrra fékk annan álíka óróa þó hann hafi reyndar minnt meira á karatestjörnu. Sá órói hafði þó líklega meira notagildi en þessi nýji. Mér kemur að minnsta kosti ekki til hugar að hengja þennan hrylling upp heima hjá mér, nema kannski á þá hlið jólatrésins sem snýr að veggnum. Þetta er kannski ekkert sérstaklega ljótt, þetta er bara svo svakalega stórt. Það hefði verið til mikilla bóta að hafa þetta svolítið nettara, jafnvel þre- til fjórfallt minna. Ljóðið hans Andra Snæs, um Hurðaskelli sem fylgdi með, er reyndar fyndið. Takk Glitnir. Djöfull er ég vanþakklátur(samt ekki vanþakklátur og bankinn er fyrir viðskiptin mín).
En snúum okkur að málum málanna:

Þó að allir séu auðvitað velkomnir er auðvelt að sjá að þessi auglýsingu er sérstaklega beint að Röskvurum.
Ef það er eitthvað sem Reykjavík þarf ekki á að halda þá er það Starbucks. Ég brast því næstum í grát þegar ég las þessa frétt.
Í fréttinni kemur fram að forsvarsmenn Starbucks telji íslenskan markað vera of lítinn til þess að það taki því að koma hingað. Ég ætla svo sannarlega að vona að þeir skipti ekki um skoðun á því. Dæmin sýna að þar sem Starbucks hefur tekið sér bólfestu þá étur fyrirtækið smátt og smátt upp alla samkeppni. Við getum svo rétt ímyndað okkur hvernig það myndi fara á þessum litla markaði hér á Íslandi. Við myndum hætta að tala um „að fara á kaffihús“ og tala þess í stað um „að fara á Starbucks“.
Þá ku auk þessa vera komið upp bænaskjal á netinu þar sem forsvarsmenn Starbucks eru hvattir til þess að opna stað á Íslandi og getur stuðningsfólkk þess sett nafn sitt við það. Það væri ekki úr vegi að setja upp samkonar bænaskjal þar sem forsvarsmenn Starbucks væru beðnir um vera ekkert að spá í Íslandi - enda er markaðurinn allt of lítill.
Undanfarinn mánuð hef ég verið að leita að gleraugunum mínum.
Ég hélt að ég hefði týnt þeim heima hjá mér, en þar finn ég þau ekki.
Hefur einhver rekist á þau?
*Athugasemdakerfið er víst í lamasessi þannig að vinsamlegast sendið ábendingar á elias@kommunan.is








