Mar 27

illfagnadurWEB.jpg

Mar 20

Við eigum líklega frábærasta forsætisráðherra í heimi hér á Íslandi. Þetta er maður sem lætur ekki smávægilegar fréttir eins og hrun krónunnar og ófremdarástand í fjármálum heimila landsins á sig fá. Hann heldur sínu striki.

Sama dag og þessum fréttum var slegið upp og allir töluðu um að allt væri á leiðinni fjandans til birtist þessi mynd í Mogganum af forsætisráðherranum frábæra.
geiranasdaq.jpg

Þetta er alvöru leiðtogi. Jafnvel á erfiðistu tímum þá sýnir hann engann ótta og engar áhygggjur heldur gerir sér bara glaðan dag í kauphöllinni.

Mar 12

Ég er ekkert hættur.

Má til með að vísa fólki á þessa góðu grein félaga Finns. Í henni sýnir hann fram það mikla bruðl og vitleysa varnar(les her)málafrumvarp utnanríkisráðherra er.

Mér finnst þetta furðuleg forgangsröðun hjá frúnni. 1500 milljónir króna í stofnun sem enn er verið að reyna að finna hlutverk. Er ekki lágmark að skilgreina verkefnið áður en fé er veitt til þess?

Frúin hefði betur sett 1500 milljónir í eitt af sínum gömlu áhugamálum - kvenfrelsismálin.