Archive for April 2008


Krataóþolið eykst

April 30th, 2008 — 12:49pm

Krataóþolið stigmagnast dag frá degi, nú hefur það náð á síður dagblaðana. Þessi grein er pilla við því mikla krataóþoli sem kom yfir mig þegar ég las þessa grein. Vonandi virkar hún.

Comment » | Stjórnmál, Stúdentaráð

Þotuliðið

April 26th, 2008 — 11:43pm

Samtökin „Matur ekki einkaþotur“ eru til fyrirmyndar. Þau eru að vekja athygli á því að í Reykjavík býr heimilislaust fólk sem er hjálpar þurfi og sýna okkur jafnframt að við getum öll lagt okkar að mörkum til þess að hjálpa því.

Talsmaður samtakanna segir að þau vera af erlendri fyrirmynd sem kallast Matur ekki sprengjur. Þr sem tengingin við sprengjur er lítil á Íslandi hafi þau ákveðið að vísa í einkaþotur í staðinn.

Hér á Íslandi er reyndar mjög sterk tenging á milli einkaþotna annars vegar og vopna, sprengja og manndrápstópla hinsvegar. Þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, og Geir H Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, fóru á NATO-fund í Búkarest til þess að skrifa undir stuðning Íslands við aukinn vígbúnað heimsins ferðuðust þau einmitt þangað með einkaþotu. Þess vegna er einkaþotan tákn vígvæðingarinnar á Íslandi.

Comment » | Dægurmál, Friðarmál, Stjórnmál

Vonandi ekki bara táknrænt

April 26th, 2008 — 11:08pm

Mikið var ég glaður að sjá fréttir af táknrænum gjörningi Ungra jafnaðarmanna og Græna netsins, umhverfishreyfingar Samfylkingarinnar(þarf Samfylkingin sér umhverfishreyfingu innan sinna raða? Vá hvað hún er stór!) í Helguvík í gær. Þar plöntuðu fulltrúar þeirra tveimur plöntum, sem þau gáfu nöfnin Þórunn og Össur, til þess að koma í veg fyrir að álver risi þar. Þessi táknræni gjörningur var miklu betri en sá þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra skrap á NATO-fund með einkaþotu.

Því miður hefur ekkert hefur heyrst í Ungum jafnaðarmönnum eða öðrum innan Samfylkingarinnar síðan Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra(sú sem önnur plantan er nefnd eftir) hundsaði vilja þeirra og vísaði frá kæru Landverndar vegna álits Skipulagsstofnunnar á umhverfismati álversins. Hefði kæran verið tekin til greina hefði það mögulega getað komið í veg fyrir að álverið yrði að veruleika, í það minnsta tafið framkvæmdir. Enn síður hefur nokkuð heyrst frá umhverfishreyfingu Samfylkingarinnar, nema kannski eitthvað óljóst tuð um að Vinstri græn væru engu betri og að umhverfisstefna Samfylkingarinnar væri miklu betri stefna Vinstri grænna.

Ég fann því fyrir ánægjulegum létti að sjá þessar sniðugu táknrænu aðgerðir hjá þessum tveim hópum. Ég vona líka að þessar aðgerðir séu ekki bara táknrænar heldur verði þeim fylgt eftir með því að setja nöfnu og nafna plantanna tveggja, þau Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og Þórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra, í þumalskrúfu og knýi þau til þess að gera allt sem í þeirra valdi stendur. Steingrímur J. Sigfússon hefur lýst því hvernig hægt sé að koma í veg fyrir álver í Helguvík verði að veruleika og bendi ég þeim því á að leita leiðsagnar hjá honum.

Ef að allt þrýtur og vilji umhverfisverndarfólks verður áfram virtur að vettugi innan Samfylkingarinnar þá er allt þetta góða baráttufólk að sjálfsögðu velkomið í Vinstri græn til þess að halda baráttunni áfram þar.

Comment » | Stjórnmál, Umhverfismál

Allir í herinn!

April 26th, 2008 — 3:23pm

Comment » | Friðarmál, Stjórnmál

Vanhæf lögregla

April 25th, 2008 — 10:20am

Lögregluna skortir augljóslega þjálfun og kunnáttu til þess að takast á við aðstæður líkt komu upp við Suðurlandsveg á miðvikudaginn. Af minnsta tilefni fór hún fram með óhóflegu valdi og ofbeldi. Með því gerði hún ástandið miklu verra heldur en það hefði átt að geta orðið. Þetta virðist koma fyrir aftur og aftur. Það sýnir okkur að lögreglan er vanhæf í aðstæðum sem þessum og að ofbeldi er ekki til þess fallið að leysa neinn vanda. Aðgerðir lögreglu gerðu bara illt verra.

Þegar ég horfði upp á aðfarir lögreglunnar þá varð mér hugsað til þess að nú er til athugunar að láta „rafstuðsbyssur“ í hendurnar á henni. Á miðvikudaginn sást að lögreglunni er ekki treystandi fyrir slíkum, né öðrum, vopnum. Hefði lögreglan haft slík vopn í höndum sínum þá hefðu mótmælendurnir eflaust orðið fyrir meira líkamlegu tjóni heldur en sárum augum og tognunum. Ég efast ekki um að lögreglan hefði beitt þessum byssum í stað piparúðans gegn mótmælendunum.

Svo má ekki gleyma í hvaða tilgangi þessu ofbeldi var beitt. Ofbeldinu var beitt til þess að opna götu, og höfum í huga að hægt var að komast til og frá borginni um hjáleið. Ofbeldinu var beitt gegn hópi fólks sem var að mótmæla og vekja athygli á málstað sínum, mjög óljósum reyndar. Réttlætti þetta ofbeldisbeitingu? Ef svo er þá er eins gott að halda sig á mottunni.

Það er alveg á hreinu að traust almennings til lögreglunnar hefur dvínað mikið við þessar ömurlegu og heimskulega framgöngu hennar á miðvikudaginn. Yfirmenn lögreglunnar ættu að sjá sóma sinn í því að biðjast afsökunar á þessu og lofa því að slík mistök verði aldrei gerð aftur. Því næst ættu þeir að tryggja starfsmönnum sínum viðeigandi þjálfun í því að takast á við aðstæður sem þessar.

Comment » | Dægurmál, Stjórnmál

Áróður

April 11th, 2008 — 9:10am

Ég má til með að vísa ykkur á tvær greinar . Annars vegar er það Í landi mótsagnanna eftir Steinunni sem birtist í 24 stundum í gær og svo Þotuliðið í NATO eftir Finn Dellsén.

Svo er hérna smá áróður:

stjmskhbsweb.jpg

Smelltu á myndina til að fá frekari upplýsingar

othstrweb.jpg

Comment » | Friðarmál, Stjórnmál

Við lofum - þið efnið

April 7th, 2008 — 9:42pm

Ég er farinn að hafa smá áhyggjur af Samfylkingunni. Hún virðist þola gagnrýni frekar illa. Reyndar gengur henni enn verr að mæta gagnrýni.

Ef ég skildi Hr. Fagra Ísland rétt í Kastljósi í kvöld, og bloggsíðum hér og þar, þá virðist hlutverk Samfylkingarinnar eingöngu vera að lofa en síðan eigi aðrir að sjá um að efna þau, helst stjórnarandstöðuflokkarnir.

Hvað er í gangi hjá Samfylkingunni? Hún var farin að líta svo vel út við hliðina á Sjálfstæðisflokknum og Geir. Nú má svo vart á milli sjá hvor flokkurinn og hvor formaðurinn eigi minna erindi við dagsljósið.

Þau eru að minnsta kosti ekki að eyða óþarfa tíma á flugvöllum. Við getum huggað okkur við það… eða er það kannski engin huggun?

1 comment » | Uncategorized

Sterkir leiðtogar

April 3rd, 2008 — 8:54pm

Þegar ég var orðinn úrkula vonar um framtíð lands og þjóðar þá stíga Geir Haarde og Ingibjörg Gísladóttir fram og sýna okkur dómgreind sína verki. Hún er semsagt engin. Við þurfum þó ekki að örvænta því Ung vinstri græn hafa útbúið leiðbeiningar handa þeim til að bjarga andlitinu.

leidbeiningar.jpg

Það hefði að sjálfsögðu verið landi og þjóð fyrir bestu ef þau hefðu einfaldlega slept þessari ferð og sent NATO-fundinum í skeyti í staðinn þar sem tilkynnt væri um úrsögn Íslands úr þessu ógeðslega bandalagi.

Og talandi um það þá er ekki úr vegi að kynna sér þetta.

Comment » | Uncategorized

Back to top