Hvor er í ríkisstjórn?
Samfylkingin og Sjálfsstæðisflokkurinn sátu í ríkisstjórn síðast þegar ég vissi. Ég er ekki viss um að Lúðvík Bergvinsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar sé með það á hreinu.
Þegar ég fylgdist með orðaskaki Lúðvíks og Guðna Ágústssonar, formanns Framsóknarflokksins, um efnahagsmál í Kastljósi í kvöld fór ég að velta því fyrir mér hvort Guðni væri ennþá í ríkisstjórn. Þarna mætti Lúðvík sem málssvari ríkisstjórnarinnar og Guðni fyrir hönd stjórnarandstöðunnar.
Lúðvík svaraði hvorki gagnrýni Guðna né upplýsti okkur, almenning og aðra áhorfendur, um það hvort og þá hvað ríkisstjórnin væri að gera til að sporna við því skelfingar ástandi efnahagsmálin eru komin í. Þess í stað krafði hann Guðna svara og útskýringa á því hvað hann vildi að gert yrði. Öfugsnúið.
Vissulega gat Guðni engu svarað, enda varla við öðru að búast. Það hlýtur engu að síður, og reyndar þess vegna, að teljast heldur aum ríkisstjórn sem ætlar að reiða sig á hugmyndir frá Framsóknarflokknum til þess að bjargna efnahagslífi landsins.
Þessi frammistaða Lúðvíks lýsti fullkomnu ráðleysi hans og ríkisstjórnarinnar í þessum málum. Reyndar má segja að hann hafi með þessari frammistöðu lýst yfir vantrausti á sjálfan sig og ríkisstjórnina.