Það er svolítið eins og Samfylkingin átti sig ekki alveg á þeirri stöðu sem hún er í. Þingmenn, ungliðar og jafnvel ráðherrar flokksins vilja kosningar og nýja stjórn í Seðlabankann. Það er samt eins og þau átti sig ekki á því að forysta flokksins hefur þetta allt í hendi sér.
Davíð Oddsson situr í Seðlabankanum í boði Samfylkingarinnar. Geir H. Haarde er forsætisráðherra í boði Samfylkingarinnar. Árni Matthiesen er fjármálaráðherra í boði Samfylkingarinnar. Fjármálaeftirlitið er í boði Samfylkingarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í boði Samfylkingarinnar í 18 mánuði. Vanvirðing og sniðganga framkvæmdavaldsins á Alþingi er í boði Samfylkingarinnar.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur stjórnað landinu í 17 ár – 17 árum of lengi. Hann þarf ekki að stjórna landinu sekúndu lengur en Samfylkingin vill. Davíð Oddsson þarf ekki að sitja sekúndu lengur en Samfylkingin vill. Eruð þið að ná þessu?
Ég vona svo sannarlega að Samfylkingin fari að ná þessu því nú þurfum við nauðsynlega á kosningum að halda og félagshyggjustjórn í kjölfarið. Flestir aðrir eru búnir að ná þessu.
Nú bíðum við bara eftir Samfylkingunni.









