Jól?
Já, gleðileg jól!

mín orð
Er það bara ég eða er þessi frétt RÚV ekki grunsamlega lík þessari frétt á Smugunni?
Copy paste? Er Smugan nokkuð heimild RÚV?
Hvað veit maður?
Ég hef ákveðið að læra af Samfylkingunni.
Já, þið lásuð rétt.
Samfylkingarfólk segir: „Ef við hefðum verið í Evrópusambandinu þá væri allt betra.“
Ef þau tönglast nógu mikið(ekki of eins og þau eru nú farin að gera) þá fer fólk að trúa þessu(þangað til það hættir að trúa þessu þegar það er tönglast of mikið á þessu).
Ég ætla að segja: „Ef við hefðum haft alvöru vinstristjórn við völd þá væri allt betra.“
og ef fólk finnst ég vera að horfa of mikið í baksýnisspegilinn segi ég: „Ef við fáum alvöru vinstristjórn þá verður allt betra.“
Ferlega finnst mér Heimssýn vera skringilegur félagsskapur.
Þarna er saman komið fólk sem er sammála um það eitt að vera á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu. Ástæður andstöðunnar eru svo jafn margar og fólkið, eða því sem næst.
Hvernig getur það eiginlega verið megin pólitísk afstaða einhvers að vera með eða á móti aðild að ríkjabandalagi? Afstaða til Evrópusambandsaðildar getur ekki verið pólitísk afstaða í sjálfu sér heldur hlýtur hún að byggja á mati út frá einhverri pólitískri sýn. Í mínu til felli er það útfrá sósíalisma, femínisma, friðarstefnu og náttúruvernd.
Ég skil því ekki hvernig flokksfélagar mínir geta verið félagsskap eins og Heimssýn. Ekki myndi ég vilja vera í liði með Jóni Vali Jenssyni, Sigurði Kára Kristjánssyni, Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur eða Hirti J. Guðmundssyni bara vegna þess að ég hef sömu afstöðu til Evrópusambandsaðildar og þau.
Svona félagsskapur dregur bara athyglina frá ástæðunum andstöðunnar yfir á andstöðuna sjálfa.