Afburðaflokkurinn
Síðan ég komst til vits hef ég aldrei búist við neinu góðu frá Sjálfstæðisflokknum og hef aldrei séð neitt gott frá honum koma.
Ég verð þó að játa það á mig að ég bjóst við því að þessi stóri og öflugi flokkur, uppfullur af hæfu afburðafólki, myndi veita nýrri ríkisstjórn öflugt og málefnalegt aðhald nú eftir að hann gafst upp á því að moka flórinn eftir sjálfan sig. Það voru mistök. Því er öðru nær.
Sjálfstæðismenn berjast nú um hæl og hnakka við að verja bitlingkerfið sem hann byggði upp. Þetta gera þeir þrátt fyrir að hafa misst völdin til þess að veita þá - eru kannski ekki búnir að átta sig á því.
Nýja ríkisstjórnin hefur nú lagt fram frumvarp um Seðlabanki Íslands verði fagleg stofnun enn ekki biðstofa ónothæfra stjórnmálamanna eftir eftirlaununum sem þeir úthlutuðu sér sjálfir. Ný ríkisstjórn vill semsagt að bankstjórunum verði fækkað í einn og að hann verði ráðinn á faglegum forsendum að undangenginni auglýsingu. Þessu eru Sjálfstæðismenn á móti.
En hvers vegna eru þeir á móti? Það veit því miður enginn. Það hefur ekki komið fram í ræðum þeirra á Alþingi í dag, sem þó hafa verið bæði margar og langar. Ég verð því að reyna að giska á ástæður þeirra og það eru tvær tilgátur sem mér þykja jafn líklegar.
- Þeir eru á móti til þess að vera á móti
- Þeir vilja ekki að Davíð Oddsson missi starf sitt í Seðlabankanum, en frumvarpið gæti leitt það af sér.