Archive for March 2009


Tilgangur kynjakvóta

March 9th, 2009 — 6:42pm

Tilgangur þess að nota kynjakvóta og fléttulista  í Vinstri grænum hefur alltaf verið að auka hlut kvenna á Alþingi og í stjórnmálum. Tilgangur þeirra hefur aldrei verið að tryggja áframhaldandi yfirburðahlut karla á Alþingi og í stjórnmálum.

Þess vegna þarf ekki einu sinni að ræða það hvort færa eigi karla upp á kynjakvóta. Það stangast augljósa á við stefnu flokksins, að  minnsta kosti á meðan karlar sitja í meira en 60% þingsæta.

Comment » | Stjórnmál, Uncategorized

Ósigur?

March 9th, 2009 — 10:53am

Þegar niðurstaða prófkjara liggja fyrir þá virðist það vera skylda pólitískra andstæðinga að finna eitthvað neikvætt við hana. Niðurstaðan í forvali Vinstri grænna er eiginlega það góð að það er ekki hægt gangrýna hana.

…En menn finna nú samt eitthvað.

Nú er forvalið orðið ósigur grænu gildanna í flokknum. Ástæðan? Jú, Kolbrún Halldórsdóttir lenti í öðru þriðja sætinu. Það virðis hafa farið framhjá fólki að Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdtórri eru í tveim fyrstu sætunum, Árni Þór Sigurðsson í öðru og Álfheiður Ingdóttir í þriðja. Öll hafa þau verið öflugir talsmenn umhverfis- og náttúruverndar, sérstaklega Svandís á undanförnum misserum.

Áherslur Kolbrúnar í umhverfis- og náttúruverndarmálum er ekki ástæða þess að hún hafi lent í þriðja sæti. Þvert á móti tel ég að það hafi hjálpað henni frekar en hitt. Mér þykir líklegat að hin margtuggna krafa um endurnýjun sé ástæðan enda var Kolbrún eini þingmaður flokksins í forvalinu sem setið hefur síðan 1999. Hin komu öll inn á þing 2007.

Þetta forval er nær því að vera sigur fyrir grænu gildin heldur en ósigur því flest bendir til þess að þriðja sætið sé þingsæti. Niðurstöður forvalsins munu því stuðla að fjölgun, ekki bara kvenna á Alþingi, heldur líka grænum þingmönnum.

Comment » | Stúdentaráð, Umhverfismál

Slappir jakkafatagosar

March 7th, 2009 — 5:51pm

Það var vandræðalegt að horfa Kastljós í gærkvöldi þar sem Björg Eva og Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,ræddu fréttir vikunnar.

Þau byrjuðu að ræða um mögulega álversuppbygginu í Helguvík og tengd mál.

Kjartan hlýtur, sem varformaður(og fyrrverandi formaður) stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur,  að teljast helsti sérfræðingur Sjálfstæðisflokksins í orkumálum. Þá er hann nýlega búinn að  samþykkja raforkusamning Orkuveitunnar við Century Aluminum vegna umrædds álvers, bæði í stjórn Orkuveitunnar og í borgarstjórn. Ég taldi því að Kjartan væri sérstaklega vel upplýstur stöðu áliðnaðarins í heiminum í ljósi þess að hann var nýlega búin að samþykkja að binda alla nýja orkuframleiðslu Orkuveitunnar næstu 5 til 10 árin í raforkusamningi við álframleiðanda. Það var öðru nær.

Björg Eva leit út fyrir að vera sérfræðingurinn. Vissulega er hún vel upplýst um þessi mál enda erum við búin að skrifa mikið um þau í Smugunni. En verður maður ekki að gera þá kröfu að maður í stöðu eins og Kjartan hafi afburðarþekkingu á málaflokknum,  í það minnta góða þekkingu? Kjartan virtist hins vegar ekki vita neitt – eins og hann hefði hreinlega ekki aðgang að internetinu.

Þetta er kannski dæmigert fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þar hafs margir verið talaðir uppi í að vera snillingar, en þegar á reynir eru þeir bara slappir gosar í jakkafötum.

Comment » | Uncategorized

Bjartsýni og raunsæi

March 5th, 2009 — 5:31pm

Raunsæi útilokar ekki bjartsýni. Ég veit að ástandið á Íslandi er skítt en ég er samt bjartsýnn.

Ég hef tekið eftir því að margir vilji skipta raunsæinni alveg út fyrir bjartsýnina. Þeir vilja ekki vita af vandanum, bara horfa fram fram í tímann og vona að allt reddist á sjálfu sér.

Comment » | Uncategorized

Frábært fólk á þing!

March 5th, 2009 — 2:37pm

Ég kann mjög illa að taka hrósi(þá sjaldan ég fæ það), finnst það eiginlega bara vandræðalegt. Eftir á fæ ég svo yfirleitt áhyggjur af því að ég hafi tekið hrósinu of fálega - verið hrokafullur - þó ég hafi fyrst og fremst verið auðmjúkur og vandræðalegur. En þetta auðvitað ekkert vandamál fyrir mig.

Auður Lilja er aftur á móti manneskja sem þarf að hafa áhyggjur af þessu því hún á allt hrós skilið… og öll atkvæði ef út í það er farið.  Hún er einmitt í framboði í forvali Vinstri grænna í Reykjavík og sækist þar eftir 2. sæti.

Ég gæti skrifað sér endalausan pistil um það hversu frábær Auður Lilja er, en ætla ekki að bjóða lesendum mínum upp á slíka helgislepju. Þess í stað vísa ég í þennan pistil í Smugunni. Hann segir allt sem ég hefði sagt viljað hafa um Auði Lilju nema eitt: Hún er frábær og nú þarf frábært fólk á þing!

Ég skora á alla sem vilja frábært fólk á þing að taka þátt í forvalinu og kjósa Auði Lilju.

Comment » | Stjórnmál

Back to top