Slappir jakkafatagosar
Það var vandræðalegt að horfa Kastljós í gærkvöldi þar sem Björg Eva og Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,ræddu fréttir vikunnar.
Þau byrjuðu að ræða um mögulega álversuppbygginu í Helguvík og tengd mál.
Kjartan hlýtur, sem varformaður(og fyrrverandi formaður) stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, að teljast helsti sérfræðingur Sjálfstæðisflokksins í orkumálum. Þá er hann nýlega búinn að samþykkja raforkusamning Orkuveitunnar við Century Aluminum vegna umrædds álvers, bæði í stjórn Orkuveitunnar og í borgarstjórn. Ég taldi því að Kjartan væri sérstaklega vel upplýstur stöðu áliðnaðarins í heiminum í ljósi þess að hann var nýlega búin að samþykkja að binda alla nýja orkuframleiðslu Orkuveitunnar næstu 5 til 10 árin í raforkusamningi við álframleiðanda. Það var öðru nær.
Björg Eva leit út fyrir að vera sérfræðingurinn. Vissulega er hún vel upplýst um þessi mál enda erum við búin að skrifa mikið um þau í Smugunni. En verður maður ekki að gera þá kröfu að maður í stöðu eins og Kjartan hafi afburðarþekkingu á málaflokknum, í það minnta góða þekkingu? Kjartan virtist hins vegar ekki vita neitt – eins og hann hefði hreinlega ekki aðgang að internetinu.
Þetta er kannski dæmigert fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þar hafs margir verið talaðir uppi í að vera snillingar, en þegar á reynir eru þeir bara slappir gosar í jakkafötum.
Category: Uncategorized