Þegar niðurstaða prófkjara liggja fyrir þá virðist það vera skylda pólitískra andstæðinga að finna eitthvað neikvætt við hana. Niðurstaðan í forvali Vinstri grænna er eiginlega það góð að það er ekki hægt gangrýna hana.
…En menn finna nú samt eitthvað.
Nú er forvalið orðið ósigur grænu gildanna í flokknum. Ástæðan? Jú, Kolbrún Halldórsdóttir lenti í öðru þriðja sætinu. Það virðis hafa farið framhjá fólki að Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdtórri eru í tveim fyrstu sætunum, Árni Þór Sigurðsson í öðru og Álfheiður Ingdóttir í þriðja. Öll hafa þau verið öflugir talsmenn umhverfis- og náttúruverndar, sérstaklega Svandís á undanförnum misserum.
Áherslur Kolbrúnar í umhverfis- og náttúruverndarmálum er ekki ástæða þess að hún hafi lent í þriðja sæti. Þvert á móti tel ég að það hafi hjálpað henni frekar en hitt. Mér þykir líklegat að hin margtuggna krafa um endurnýjun sé ástæðan enda var Kolbrún eini þingmaður flokksins í forvalinu sem setið hefur síðan 1999. Hin komu öll inn á þing 2007.
Þetta forval er nær því að vera sigur fyrir grænu gildin heldur en ósigur því flest bendir til þess að þriðja sætið sé þingsæti. Niðurstöður forvalsins munu því stuðla að fjölgun, ekki bara kvenna á Alþingi, heldur líka grænum þingmönnum.








