Þó að Vinstri græn hafi unnið kosningasigur þá náðust þær breytingar ég hafði vonast eftir ekki í gegn.
Hægrisinnaður stóriðjuflokkur mun áfram leiða ríkisstjórn. Þrátt fyrir allt fær Sjálfstæðisflokkurinn fjórðung atkvæða og Framsóknarflokkurinn bætir við sig. Svo fengum við nýjan popúlistaflokk inn á þing í staðinn fyrir Frjálslyndaflokkinn. Fjórir af fimm flokkum á Alþingi eru enn hægriflokkar.
Getur það svo verið að kratarnir séu að gíra sig upp í að hlaupast frá möguleikanum á hreinni vinstri stjórn? Mér sýnist það, en vonandi sannast ekki hið forkveðna um að kratarnir svíki alltaf.
En þetta er það sem fólkið vill. Mikil skelfing getur lýðræðið verið mistækt.








