Áskoranir um að fylgja sannfæringu

Mikið er um áskoranir frá svæðisfélögum og hópum félagsmanna Vinstri grænna til þingmanna flokksins um að þeir fylgi sannfæringu sinni við afgreiðslu þingsályktunartillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Allar þessar áskoranir virðast gera ráð fyrir að sannfæring þingmannanna sé sú sama og þeir sem undir þær skrifa – að halda eigi tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu eða bara fella þingsályktunartillöguna.

Hvað ef einhverjir þingmenn hafa aðra sannfæringu? Að þeir telji til dæmis að þingsályktunartillagan feli í sér bestu leiðina til þess að leiða málið til lykta – að þeir vilji einfaldlega fá að segja NEI þegar samningur liggur fyrir. Eiga þeir engu að síður að fylgja sannfæringu áskorendanna?

Category: Uncategorized

Comments are closed.

Back to top