Category: Ferðalög


Moldavía

March 13th, 2007 — 1:00pm

Það er komið á hreint að ég þarf að fara að skoða landakortið og afla mér upplýsinga um Moldavíu.

Lumið þið á einhverjum fróðleik?

2 comments » | Ferðalög

Argentína

September 20th, 2006 — 1:00pm

Í gær sótti ég Lonely Planet bók um Argentínu í Bóksöluna. Átæðan er sú að við Guðrún Svava erum stefnum á að fara í smá túr um Argentínu næsta sumar. Ég er strax farinn að iða í skinninu og ekki minkaði það kláðann að fá þessa bók í hendurnar.

5 comments » | Ferðalög

Saga frá útlöndum

September 12th, 2006 — 8:50pm

Ég var búinn að lofa sjálfum mér, einhverjum öðum en þó aðallega Guðrúnu Svövu að setja hér inn einhverskonar ferðasögu frá Slóveníu, Feneyjum og Lundúnum. Ferðin stóð frá 19. júní til 4. júlí og var frábær.

Continue reading »

1 comment » | Ferðalög

Dobr dan

June 22nd, 2006 — 5:08pm

Vid erum nu buin ad dvelja trjar sveittar naetur i Ljubljana. Ferdin thangad gekk vel fyrir sig thratt fyrir ad eg hafi tvisvar sinnum thurft ad draga beltid mitt ur buxnastrengnum. Eg hefdi reyndar alveg getad slept thessu belti, og sparad mer onaedid, thar sem buxurnar minar halda ser alveg uppi sjalfar thessa daganna og rumlega thad.

Thad ma segja ad hitastigid i hinni aegifogru Ljubljana hafi komid okkur a ovart. Vid bjuggumst ekki vid neinu kuldakasti en tho ekki vid 30+. That hefur tvi tekid okkur sma tima ad venjast hitanum, eda ollu heldur ad venjast tvi ad svitna stanslaust. Vedrid hefur tho tekid sin kost. I dag thegar vid skruppum i hjolatur um utivistarsvaedi theirra i Ljubljana fengum vid ekki bara thrumur, eldingar og steypiregn heldur einnig haglel. Vid urdum auvitad blaut inn ad beini, en thad var bara agaetis tilbreyting fra ad blontna innan fra beini.

A morgun er sidasti dagurinn i Ljubljana og a laugardag holdum vid til fjalla. Nanar um thad sidar.

2 comments » | Ferðalög

Af fjallstindi

June 4th, 2006 — 11:43pm

Í gær gengum við tignarlegum og ákveðnum skrefum upp brattar brekkur Hafnarfjalls. Ofan af því nutum glæsilegs útsýnis. Í norð-austri fangaði tignarlegur Eiríksjökull augun. Í norð-vestri glitti í Snæfellsjökul og glæsilega fjallgarða. Í suðri sáum við Akranes vafið inn í fallegt mengunarský sem gaus ákaft upp úr strompi sementsverksmiðjunnar. Fegurð.

Comments Off | Ferðalög

Sumarið í hyllingum

February 1st, 2006 — 10:39am

Ég setti nýársheit í síðustu færslu. Það gildir auðvitað bara í eitt ár - 2006. Ég mun reyna að halda það eftir fremsta megni. Það er þó annað heit sem ég hef mun meiri metnað fyrir, það er lífsheit mitt.

Lífsheit mitt er að ferðast um alla hluta jarðarinnar, helst um öll lönd. Ég gerði ekkert á síðasta ári til þess að fikra mig í átt að þessu takmarki. Á þessu verður þó breyting í sumar.

Við Guðrún Svava erum búin að ákveða að skella okkur til Feneyja og svo í ferðalag um Slóveníu í sumar. Ég varla beðið. Svo eru reyndar farin að verða til ýmis áform um ferlalög og gönguferðir innanlands. Ég er strax farinn að hlakka til sumarsins.

1 comment » | Ferðalög

Back to top