Stelpurnar okkar?
Jæja… þá höfum við eignast stelpur.
Þurfum við ekki að fara að safna fyrir flugfari og gjaldeyrir fyrir þær?
mín orð
Jæja… þá höfum við eignast stelpur.
Þurfum við ekki að fara að safna fyrir flugfari og gjaldeyrir fyrir þær?
Ég vil þakka ríkisstjórinni, forsetanum og borgarstýrunni fyrir frábæran árangur íslenska handboltalandsliðsins á Ólympíuleikunum. Það hefur ekki verið gert nægilega mikið úr þeirra hlut í silfrinu. Reyndar skyggðu þessir strákar í landsliðinu heldur mikið á þau á sviðinu.
Hvað eigingirni er þetta í okkur. Sáuð þið þá ótrúlegu gleði sem braust út hjá Liecthensteinunum (eða hvernig sem maður segir það) þegar þeir höfðu lagt okkur Íslendingana 3 - 0. Gott er að gleðja aðra og við ættum einfaldlega að samgleðjast með Liecthensteinum. Það er ekki oft sem þeir vinna stórþjóð eins og Ísland í knattspyrnu.
Í blaðinu Blaðinu í dag er fjallað um mikla eftirspurn eftir svokölluðum „VIP-stúkum“ á endurbyggðum þjóðarleikvangi okkar Íslendinga, Laugardalsvellinum.
Er ég einn um það að finnast það asnalegt að hafa stúkur á þjóðarleikvangi stéttskiptar?
Hvernig er hægt að ganga algjörlega fram hjá íþróttafólki sem hefur unnið heimsmeistaratitil á árinu?
Comments Off | Íþróttir
Spár mínar um velgegni Ecuador í Heimsmeistarakepninni í knattspyrnu virðast ætla að ganga eftir. Í fyrsta leik sínum völtuðu þeir yfir slakt lið Pólverja 2-0.
Margir “spekingar” höfðu spáð því að Pólverjar myndu koma á óvart í þessari kepni. Það er alveg ljóst að þeir hafa komið “spekingunum” á óvart með slakri frammistöðu.
Áfram Ekvador!