March 9th, 2009 — 10:53am
Þegar niðurstaða prófkjara liggja fyrir þá virðist það vera skylda pólitískra andstæðinga að finna eitthvað neikvætt við hana. Niðurstaðan í forvali Vinstri grænna er eiginlega það góð að það er ekki hægt gangrýna hana.
…En menn finna nú samt eitthvað.
Nú er forvalið orðið ósigur grænu gildanna í flokknum. Ástæðan? Jú, Kolbrún Halldórsdóttir lenti í öðru þriðja sætinu. Það virðis hafa farið framhjá fólki að Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdtórri eru í tveim fyrstu sætunum, Árni Þór Sigurðsson í öðru og Álfheiður Ingdóttir í þriðja. Öll hafa þau verið öflugir talsmenn umhverfis- og náttúruverndar, sérstaklega Svandís á undanförnum misserum.
Áherslur Kolbrúnar í umhverfis- og náttúruverndarmálum er ekki ástæða þess að hún hafi lent í þriðja sæti. Þvert á móti tel ég að það hafi hjálpað henni frekar en hitt. Mér þykir líklegat að hin margtuggna krafa um endurnýjun sé ástæðan enda var Kolbrún eini þingmaður flokksins í forvalinu sem setið hefur síðan 1999. Hin komu öll inn á þing 2007.
Þetta forval er nær því að vera sigur fyrir grænu gildin heldur en ósigur því flest bendir til þess að þriðja sætið sé þingsæti. Niðurstöður forvalsins munu því stuðla að fjölgun, ekki bara kvenna á Alþingi, heldur líka grænum þingmönnum.
Comment » | Stúdentaráð, Umhverfismál
April 30th, 2008 — 12:49pm
Krataóþolið stigmagnast dag frá degi, nú hefur það náð á síður dagblaðana. Þessi grein er pilla við því mikla krataóþoli sem kom yfir mig þegar ég las þessa grein. Vonandi virkar hún.
Comment » | Stjórnmál, Stúdentaráð
February 12th, 2007 — 11:39am
Ég vona þið séuð ekki farin að halda að ég sé ofstopafullur ofbeldismaður sem telur svarið við vandamálum heimsins vera ofbeldi. Ég vona að síðustu tvær færslur mínar hafi ekki rekið á fjórðaþúsund háskólastúdenta út í búð í leit að hnéhlífum. Þessar færslur voru ekki bein hótun heldur áttu þær að vera skopskæling af þeirri geðveiki sem yfirtekur marga sem tengjast kosningum til Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
En kosningarnar eru búnar. Ég óska fulltrúum Röskvu og Vöku að sjáfsögðu til hamingju með sæti sín í ráðinu og þess að þau haldi árangursríku samstarfi sínu áfram.
Hvað Háskólalistann varðar þá þurfti hann á hvíldinni að halda auk þess sem fulltrúar Röskvu og Vöku sýndu með samstarfi sínu í vetur að þau geta unnið saman og að það skili árangri. Háskólalistinn hefur haft mikil áhrif á stúdentapólitíkina. Nú mun koma í ljós hvort þessi áhrif séu varanleg eða hvort allt fari aftur í sama farið þegar aðhald þriðja framboðsins er horfið. Það er því augljóslega í höndum fulltrúa Rösvku og Vöku hvort slíkt framboð mun bjóða fram á næsta ári eða ekki. Ég vona svo sannarlega að þess gerist ekki þörf.
1 comment » | Stúdentaráð
February 9th, 2007 — 4:20pm
Það lítur út fyrir að ég þurfi að ég þurfi að fara að hlaða og smyrja borvélina mína, ekki veitir af því ég þarf að bora í sexþúsundsexhundruðfimmtíuogátta hnéskeljar.
3 comments » | Stúdentaráð
January 12th, 2007 — 11:56pm
VARÚÐ!
Áður en lengra er haldið þá vil ég vara ykkur við því að þetta er færsla um stúdentapólitík. Þið haldið því lestrinum áfram á ykkar eigin ábyrgð.
Continue reading »
5 comments » | Stúdentaráð