March 9th, 2009 — 10:53am
Þegar niðurstaða prófkjara liggja fyrir þá virðist það vera skylda pólitískra andstæðinga að finna eitthvað neikvætt við hana. Niðurstaðan í forvali Vinstri grænna er eiginlega það góð að það er ekki hægt gangrýna hana.
…En menn finna nú samt eitthvað.
Nú er forvalið orðið ósigur grænu gildanna í flokknum. Ástæðan? Jú, Kolbrún Halldórsdóttir lenti í öðru þriðja sætinu. Það virðis hafa farið framhjá fólki að Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdtórri eru í tveim fyrstu sætunum, Árni Þór Sigurðsson í öðru og Álfheiður Ingdóttir í þriðja. Öll hafa þau verið öflugir talsmenn umhverfis- og náttúruverndar, sérstaklega Svandís á undanförnum misserum.
Áherslur Kolbrúnar í umhverfis- og náttúruverndarmálum er ekki ástæða þess að hún hafi lent í þriðja sæti. Þvert á móti tel ég að það hafi hjálpað henni frekar en hitt. Mér þykir líklegat að hin margtuggna krafa um endurnýjun sé ástæðan enda var Kolbrún eini þingmaður flokksins í forvalinu sem setið hefur síðan 1999. Hin komu öll inn á þing 2007.
Þetta forval er nær því að vera sigur fyrir grænu gildin heldur en ósigur því flest bendir til þess að þriðja sætið sé þingsæti. Niðurstöður forvalsins munu því stuðla að fjölgun, ekki bara kvenna á Alþingi, heldur líka grænum þingmönnum.
Comment » | Stúdentaráð, Umhverfismál
April 26th, 2008 — 11:08pm
Mikið var ég glaður að sjá fréttir af táknrænum gjörningi Ungra jafnaðarmanna og Græna netsins, umhverfishreyfingar Samfylkingarinnar(þarf Samfylkingin sér umhverfishreyfingu innan sinna raða? Vá hvað hún er stór!) í Helguvík í gær. Þar plöntuðu fulltrúar þeirra tveimur plöntum, sem þau gáfu nöfnin Þórunn og Össur, til þess að koma í veg fyrir að álver risi þar. Þessi táknræni gjörningur var miklu betri en sá þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra skrap á NATO-fund með einkaþotu.
Því miður hefur ekkert hefur heyrst í Ungum jafnaðarmönnum eða öðrum innan Samfylkingarinnar síðan Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra(sú sem önnur plantan er nefnd eftir) hundsaði vilja þeirra og vísaði frá kæru Landverndar vegna álits Skipulagsstofnunnar á umhverfismati álversins. Hefði kæran verið tekin til greina hefði það mögulega getað komið í veg fyrir að álverið yrði að veruleika, í það minnsta tafið framkvæmdir. Enn síður hefur nokkuð heyrst frá umhverfishreyfingu Samfylkingarinnar, nema kannski eitthvað óljóst tuð um að Vinstri græn væru engu betri og að umhverfisstefna Samfylkingarinnar væri miklu betri stefna Vinstri grænna.
Ég fann því fyrir ánægjulegum létti að sjá þessar sniðugu táknrænu aðgerðir hjá þessum tveim hópum. Ég vona líka að þessar aðgerðir séu ekki bara táknrænar heldur verði þeim fylgt eftir með því að setja nöfnu og nafna plantanna tveggja, þau Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og Þórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra, í þumalskrúfu og knýi þau til þess að gera allt sem í þeirra valdi stendur. Steingrímur J. Sigfússon hefur lýst því hvernig hægt sé að koma í veg fyrir álver í Helguvík verði að veruleika og bendi ég þeim því á að leita leiðsagnar hjá honum.
Ef að allt þrýtur og vilji umhverfisverndarfólks verður áfram virtur að vettugi innan Samfylkingarinnar þá er allt þetta góða baráttufólk að sjálfsögðu velkomið í Vinstri græn til þess að halda baráttunni áfram þar.
Comment » | Stjórnmál, Umhverfismál
January 2nd, 2008 — 9:58am
Comment » | Fyndið, Krækjur, Umhverfismál
December 17th, 2007 — 10:23pm
Það hvarflaði að mér í örskotsstund að kíkja á dagatalið þegar ég horfði á tíufréttir Sjónvarps í kvöld. Ég trúði ekki eigin augum þegar sýnd var tölvuteikning af fyrirhugaðri viðbyggingu við gamla Landspítalahúsið.
Því miður er ekki 1. apríl. Ég trúi ekki að það eigi að byggja þessa skelfinu við þetta fallega hús.
Comment » | Dægurmál, Fjölmiðlar, Umhverfismál
May 20th, 2007 — 11:38pm
Fyrir tæpum mánuði skrifaði ég þessa færslu. Í henni velti ég fyrir mér Kolviði sem er kolefnisjöfnunarsjóður.
Af auglýsingum ýmissa fyrirtækja undanfarna vikuna að dæma þá virðast áhyggjur mínar hafa verið á rökum reistar. Ekki einungis er kolefnissjóðurinn notaður til þess að réttlæta ofnotkun á eldsneyti heldur er hann líka notaður af fyrirtækjum til þess að mála sig sem umhverfisvæn fyrirtæki.
Í stað þess að hvetja fólk til þess að draga úr eldsneytisnotkun þá eru send þau skilaboð að allir geti mengað af vild því það verði bara gróðursett tré í staðinn. Auðvitað er það frábært að geta á einhvern hátt bætt fyrir þá mengun sem maður veldur. Það þýðir þó ekki að við eigum ekki að draga úr henni líka.
Svo má auðvitað velta því fyrir sér hvort getum í raun og veru kolefnisjafnað heiminn með skógrækt. Ef við getum það, munum við þá halda áfram að menga þangað til við höfum ekki pláss fyrir fleiri tré eða munum við búa í trjáhýsum?
3 comments » | Umhverfismál
May 9th, 2007 — 8:36pm
Svavar Knútur er sennilega uppáhaldstónlistarmaðurinn minn eftir að ég sá hann fara á kostum á Skrúðgarðinum á Akranesi síðastliðinn laugardag. Þar söng hann meðal annars lagið Mengum Ísland með miklum tilþrifum. Mér finnst texti lagsins eiga mjög vel við í dag þegar einungis þrír dagar eru til kosninga.
Continue reading »
Comments Off | Stjórnmál, Umhverfismál
May 7th, 2007 — 6:35pm
Ef yfirtökutilboð ALCOA á ALCAN mun ganga í gegn þá mun fyrirtækið hafa ansi sterka stöðu á Íslandi. Auk þess sem ALCOA myndi ráða yfir tveim álverum, í Straumsvík og á Reyðarfirði, er ALCOA stærsti hluthafinn í ELKEM sem á og rekur járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga.
ALCOA myndi því geta haft áhrif örlög þriggja byggðarlaga, jafnvel fleiri ef stóriðjustefnan verður keyrð áfram í blindni án stopps, í hendi sér. Það eru fordæmi fyrir því að álfyritæki á Íslandi hóti því að pakka saman fái það ekki vilja sínum framgengt. Samningsstaða fyrirtækisins gagnvart Illvirkjun yrði auk þess ansi sterk.
Reyndar er ekki víst að ALCOA þyrfti að semja við Illvirkjun. Það er allt eins líklegt að fyrirtækið kaupi Illvirkjun þegar Sjálfstæðisflokkurinn einkavæðir hana.
Viljum við að ALCOA stjórni landinu?
1 comment » | Stjórnmál, Umhverfismál
May 4th, 2007 — 4:57pm
Steinunn fjallar um manninn sem bað Steingrím að nefna eitthvað land undir stjórn vinstrimanna þar sem mannréttindi væru ekki fótum troðin.
Þórhildur er að auglýsa nýju stríðsádeilubolina sem við í RORUVG(bannað að segja Arngrími fyrir hvað ROR stendur) vorum að framleiða. Mæli með að þið fáið ykkur nokkra annars lít ég svo á að þið séuð með stríði.
Svo verðið þið endilega að kíkja á nýja vefsíðu Ungra Framsóknarmanna. Þar má sjá nýja sýn á stjórnmál og stjórnmálabaráttu. Og þess má til gamans geta að Ungir jafnaðarmenn hafa ákveðið að taka Framsóknarmennina sér til fyrirmyndar og hafa opnað þessa síðu. Við í RORUVG sitjum hins vegar uppi með okkar ljótu og lélegu síðu. Þar má þó öðru hvoru finna eithvað um pólitík.
Að lokum vil ég benda öllum, sérstaklega stóriðju- og umhverfisskemmdarsinnum, á þessa ágætu grein eftir Finn Dellsén ár Múrnum. Já og svo er ekki úr vegi að lesa þess grein í leiðinni.
14 comments » | Fjölmiðlar, Lífið, Stjórnmál, Umhverfismál
April 25th, 2007 — 11:40am
Ég verið að velta fyrir mér kolefnisjöfnunarsjóðnum Kolviði.
Grunnhugmyndin er frábær: Ef þú neyðist til að menga þá áttu að reyna að bæta fyrir það á einhvern hátt. Í tilfelli Kolviðar bætir maður mengun sína með skórækt. Með þessari hugmynd er höfðað til einstaklingsins og hann hvattur til að vera meðvitaður um gjörðir sínar og ábyrgur fyrir þeim.
Sú mynd sem mér hefur birst í fréttum og umfjöllun um Kolvið er ekki alveg í takt við grunnhugmyndina heldur eitthvað þessa leið: Ég get mengað því að ég get kolefnisjafnað mig. Þetta er langt frá upprunalegu hugsuninni, sem meðal annarra Joe Strummer, hélt á lofti. Í þessu felst ekki að einstaklingar taki ábyrgð á gjörðum sínum heldur þvert á móti að þeir geti firrt sig ábyrgð í krafti fjármagns. Þessi hugmynd minnir mig á aflátsbréf Kaþólsku kirkjunnar á sínum tíma.
Ég vona, og reyndar fullviss um það, að sú mynd sem hefur birst mér af Kolviði sé kolröng. Ég er viss um stofnendur Kolviðs höfðu grunnhugmyndina í huga við stofnun sjóðsins. Það er þó vert að benda á hversu auðvelt er að misnota sjóði eins og Kolvið á þann hátt að hann vinni í raun gegn sínum upphaflegu markmiðum.
Comments Off | Umhverfismál