Category: Uncategorized


Áskoranir um að fylgja sannfæringu

July 15th, 2009 — 10:13am

Mikið er um áskoranir frá svæðisfélögum og hópum félagsmanna Vinstri grænna til þingmanna flokksins um að þeir fylgi sannfæringu sinni við afgreiðslu þingsályktunartillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Allar þessar áskoranir virðast gera ráð fyrir að sannfæring þingmannanna sé sú sama og þeir sem undir þær skrifa – að halda eigi tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu eða bara fella þingsályktunartillöguna.

Hvað ef einhverjir þingmenn hafa aðra sannfæringu? Að þeir telji til dæmis að þingsályktunartillagan feli í sér bestu leiðina til þess að leiða málið til lykta – að þeir vilji einfaldlega fá að segja NEI þegar samningur liggur fyrir. Eiga þeir engu að síður að fylgja sannfæringu áskorendanna?

Comment » | Uncategorized

Guðjón Ottó

July 13th, 2009 — 11:58pm

Með mömmu og pabba

Drengur varð Guðjón Ottó í gær. Í dag fór hann ásamt stoltum foreldrum og gerði það opinbert í þjóðskrá. Síðan fór hann sína fyrstu ferð í bankann í dag og lagði þar inn peninga… er sumsé fjármagnseigandi.

Comment » | Uncategorized

Engar breytingar

April 26th, 2009 — 10:48am

Þó að Vinstri græn hafi unnið kosningasigur þá náðust þær breytingar ég hafði vonast eftir ekki í gegn.

Hægrisinnaður stóriðjuflokkur mun áfram leiða ríkisstjórn. Þrátt fyrir allt fær Sjálfstæðisflokkurinn fjórðung atkvæða og Framsóknarflokkurinn bætir við sig. Svo fengum við nýjan popúlistaflokk inn á þing í staðinn fyrir Frjálslyndaflokkinn. Fjórir af fimm flokkum á Alþingi eru enn hægriflokkar.

Getur það svo verið að kratarnir  séu að gíra sig upp í að hlaupast frá möguleikanum á hreinni vinstri stjórn? Mér sýnist það, en vonandi sannast ekki hið forkveðna um að kratarnir svíki alltaf.

En þetta er það sem fólkið vill. Mikil skelfing getur lýðræðið verið mistækt.

Comment » | Uncategorized

Hræddur Moggi

April 25th, 2009 — 10:37am

Morgunblaðið hefur verið eins og hryllingssaga aflestrar að undanförnu. Ritstjórn blaðsins virðist vera alveg lafandi hrædd við að flokkurinn þeirra verði settur á ís í kosningunum. Svo reyna þau að gera lesendur sína enn hræddari með hryllingssögum um vinstrimenn.

Hingað til hef ég talið að í þesari ritstjórn sé að finna sæmilega vitiborið fólk; þegar þau virðast ekki átta sig á því að við erum nú  þegar að upplifa hryllingssögu Sjálfstæðisflokksins fer ég að efast um það. Vonandi er það samt bara hræðslan við nýja eigendur sem skýrir það. Hvað þau óttast skil ég hins vegar ekki.

Comment » | Uncategorized

Erfitt og óþægilegt

April 10th, 2009 — 8:03pm

Það er erfitt og óþægilegt að sjá jafn sögufrægan og gamalgróinn stjórnmálaflokk og Sjálfstæðisflokkinn ætla að leysast svona upp.

Comment » | Uncategorized

Tilgangur kynjakvóta

March 9th, 2009 — 6:42pm

Tilgangur þess að nota kynjakvóta og fléttulista  í Vinstri grænum hefur alltaf verið að auka hlut kvenna á Alþingi og í stjórnmálum. Tilgangur þeirra hefur aldrei verið að tryggja áframhaldandi yfirburðahlut karla á Alþingi og í stjórnmálum.

Þess vegna þarf ekki einu sinni að ræða það hvort færa eigi karla upp á kynjakvóta. Það stangast augljósa á við stefnu flokksins, að  minnsta kosti á meðan karlar sitja í meira en 60% þingsæta.

Comment » | Stjórnmál, Uncategorized

Slappir jakkafatagosar

March 7th, 2009 — 5:51pm

Það var vandræðalegt að horfa Kastljós í gærkvöldi þar sem Björg Eva og Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,ræddu fréttir vikunnar.

Þau byrjuðu að ræða um mögulega álversuppbygginu í Helguvík og tengd mál.

Kjartan hlýtur, sem varformaður(og fyrrverandi formaður) stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur,  að teljast helsti sérfræðingur Sjálfstæðisflokksins í orkumálum. Þá er hann nýlega búinn að  samþykkja raforkusamning Orkuveitunnar við Century Aluminum vegna umrædds álvers, bæði í stjórn Orkuveitunnar og í borgarstjórn. Ég taldi því að Kjartan væri sérstaklega vel upplýstur stöðu áliðnaðarins í heiminum í ljósi þess að hann var nýlega búin að samþykkja að binda alla nýja orkuframleiðslu Orkuveitunnar næstu 5 til 10 árin í raforkusamningi við álframleiðanda. Það var öðru nær.

Björg Eva leit út fyrir að vera sérfræðingurinn. Vissulega er hún vel upplýst um þessi mál enda erum við búin að skrifa mikið um þau í Smugunni. En verður maður ekki að gera þá kröfu að maður í stöðu eins og Kjartan hafi afburðarþekkingu á málaflokknum,  í það minnta góða þekkingu? Kjartan virtist hins vegar ekki vita neitt – eins og hann hefði hreinlega ekki aðgang að internetinu.

Þetta er kannski dæmigert fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þar hafs margir verið talaðir uppi í að vera snillingar, en þegar á reynir eru þeir bara slappir gosar í jakkafötum.

Comment » | Uncategorized

Bjartsýni og raunsæi

March 5th, 2009 — 5:31pm

Raunsæi útilokar ekki bjartsýni. Ég veit að ástandið á Íslandi er skítt en ég er samt bjartsýnn.

Ég hef tekið eftir því að margir vilji skipta raunsæinni alveg út fyrir bjartsýnina. Þeir vilja ekki vita af vandanum, bara horfa fram fram í tímann og vona að allt reddist á sjálfu sér.

Comment » | Uncategorized

Tvíhyggjan

December 1st, 2008 — 10:35pm

Ferlega finnst mér Heimssýn vera skringilegur félagsskapur.

Þarna er saman komið fólk sem er sammála um það eitt að vera á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu. Ástæður andstöðunnar eru svo jafn margar og fólkið, eða því sem næst.

Hvernig getur það eiginlega verið megin pólitísk afstaða einhvers að vera með eða á móti aðild að ríkjabandalagi? Afstaða til Evrópusambandsaðildar getur ekki verið pólitísk afstaða í sjálfu sér heldur hlýtur hún að byggja á mati út frá einhverri pólitískri sýn. Í mínu til felli er það útfrá sósíalisma, femínisma, friðarstefnu og náttúruvernd.

Ég skil því ekki hvernig flokksfélagar mínir geta verið félagsskap eins og Heimssýn. Ekki myndi ég vilja vera í liði með Jóni Vali Jenssyni, Sigurði Kára Kristjánssyni, Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur eða Hirti J. Guðmundssyni bara vegna þess að ég hef sömu afstöðu til Evrópusambandsaðildar og þau.

Svona félagsskapur dregur bara athyglina frá ástæðunum andstöðunnar yfir á andstöðuna sjálfa.

2 comments » | Uncategorized

Mikilvæg skilaboð

October 9th, 2008 — 12:46pm

Fram, þjáðir menn í þúsund löndum,
þið sem þekkið skortsins glímutök!
Nú bárur frelsis brotna á ströndum,
boða kúgun ragnarök.

Fúnar stoðir burtu vér brjótum,
Systkyn! Fylkjum liði í dag!
Vér bárum fjötra en brátt nú hljótum
að byggja réttlátt þjóðfélag.

Þó að framtíð sé falin,
grípum geirinn í hönd,
því Internationalinn
mun tengja strönd við strönd.

Á hæðum vér ei finnum frelsi,
hjá furstum eða goðaþjóð.
Nei, sameinðuð sundrum helsi
og sigrum, því ei skortir móð.
Alls hins stolna aftur vér krefjumst.
Ánauð þolir hungur vort trautt,
og sjálf brátt vér handa hefjumst
og hömrum meðan járn er rautt.

Þú sem kúgun ert kvalinn,
gríptu geirinn í hönd,
því Internationalinn
mun tengja strönd við strönd.

Comment » | Uncategorized

Back to top