Nafnlaus

Áskoranir um að fylgja sannfæringu
Mikið er um áskoranir frá svæðisfélögum og hópum félagsmanna Vinstri grænna til þingmanna flokksins um að þeir fylgi sannfæringu sinni við afgreiðslu þingsályktunartillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Allar þessar áskoranir virðast gera ráð fyrir að sannfæring þingmannanna sé sú sama og þeir sem undir þær skrifa – að halda eigi tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu eða bara fella þingsályktunartillöguna.

Hvað ef einhverjir þingmenn hafa aðra sannfæringu? Að þeir telji til dæmis að þingsályktunartillagan feli í sér bestu leiðina til þess að leiða málið til lykta – að þeir vilji einfaldlega fá að segja NEI þegar samningur liggur fyrir. Eiga þeir engu að síður að fylgja sannfæringu áskorendanna?

Hrós dauðans
Ég veit hvernig ég tæki hrósi frá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins væri ég þingmaður Vinstri grænna. Ég yrði skelfingu lostinn og myndi velta fyrir mér hvað ég væri að gera rangt.

Það er augljóst að þingmenn stjórnarandstöðunnar eru fyrst og fremst að reyna að nýta sér staðfasta andstöðu Ásmundar Daðasonar við Evrópusambandsaðild til þess að ná höggi á ríkisstjórnina fremur en að berjast gegn aðild. Þetta kom glögglega í ljós þegar Ásmundur hætti við að vera meðflutningsmaður breytingartillögu um að haldin yrði sérstök þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort sæki eigi um aðild. Um leið og hann dró sig í hlé hvarf áhugi allra hinna – formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins urðu einu flutningsmennirnir.

Það er annars gott hjá Ámundi að vera svona harður á sínu í þessu máli sem er augljóslega hans hjartans mál. Ég skil þó ekki alveg afhverju maður sem er svo harður í andstöðu sinni við Evrópusambandsaðild „að engin rök fái því breytt“ ætti að vilja tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Segir samviskan honum ekki að greiða atkvæði gegn öllum tillögum sem gætu mögulega leitt til aðildar?

Tal um að hann sé kúgaður er svo óskiljanlegt. Ég get ekki ímyndað mér að þingmenn stjórnarflokka undanfarinna áratuga hefðu getað farið fram með svipuðum hætti – Ásmundur hefur sagt það sem hann hefur viljað um málið hingað til án nokkurra afleiðinga. Það er hins vegar mjög skondið að fylgjast með vandlætingu Sjálfstæðismanna vegna þessa. Einn daginn hneykslast þeir yfir að  stjórnarþingmenn séu ekki sammála og hinn yfir því að þeir megi ekki vera ósammála.

Guðjón Ottó
Drengur varð Guðjón Ottó í gær. Í dag fór hann ásamt stoltum foreldrum og gerði það opinbert í þjóðskrá. Síðan fór hann sína fyrstu ferð í bankann í dag og lagði þar inn peninga… er sumsé fjármagnseigandi.

Engar breytingar
Þó að Vinstri græn hafi unnið kosningasigur þá náðust þær breytingar ég hafði vonast eftir ekki í gegn.

Hægrisinnaður stóriðjuflokkur mun áfram leiða ríkisstjórn. Þrátt fyrir allt fær Sjálfstæðisflokkurinn fjórðung atkvæða og Framsóknarflokkurinn bætir við sig. Svo fengum við nýjan popúlistaflokk inn á þing í staðinn fyrir Frjálslyndaflokkinn. Fjórir af fimm flokkum á Alþingi eru enn hægriflokkar.

Getur það svo verið að kratarnir  séu að gíra sig upp í að hlaupast frá möguleikanum á hreinni vinstri stjórn? Mér sýnist það, en vonandi sannast ekki hið forkveðna um að kratarnir svíki alltaf.

En þetta er það sem fólkið vill. Mikil skelfing getur lýðræðið verið mistækt.

Hræddur Moggi
Morgunblaðið hefur verið eins og hryllingssaga aflestrar að undanförnu. Ritstjórn blaðsins virðist vera alveg lafandi hrædd við að flokkurinn þeirra verði settur á ís í kosningunum. Svo reyna þau að gera lesendur sína enn hræddari með hryllingssögum um vinstrimenn.

Hingað til hef ég talið að í þesari ritstjórn sé að finna sæmilega vitiborið fólk; þegar þau virðast ekki átta sig á því að við erum nú  þegar að upplifa hryllingssögu Sjálfstæðisflokksins fer ég að efast um það. Vonandi er það samt bara hræðslan við nýja eigendur sem skýrir það. Hvað þau óttast skil ég hins vegar ekki.

Erfitt og óþægilegt
Það er erfitt og óþægilegt að sjá jafn sögufrægan og gamalgróinn stjórnmálaflokk og Sjálfstæðisflokkinn ætla að leysast svona upp.

Tilgangur kynjakvóta
Tilgangur þess að nota kynjakvóta og fléttulista  í Vinstri grænum hefur alltaf verið að auka hlut kvenna á Alþingi og í stjórnmálum. Tilgangur þeirra hefur aldrei verið að tryggja áframhaldandi yfirburðahlut karla á Alþingi og í stjórnmálum.

Þess vegna þarf ekki einu sinni að ræða það hvort færa eigi karla upp á kynjakvóta. Það stangast augljósa á við stefnu flokksins, að  minnsta kosti á meðan karlar sitja í meira en 60% þingsæta.

Ósigur?
Þegar niðurstaða prófkjara liggja fyrir þá virðist það vera skylda pólitískra andstæðinga að finna eitthvað neikvætt við hana. Niðurstaðan í forvali Vinstri grænna er eiginlega það góð að það er ekki hægt gangrýna hana.

…En menn finna nú samt eitthvað.

Nú er forvalið orðið ósigur grænu gildanna í flokknum. Ástæðan? Jú, Kolbrún Halldórsdóttir lenti í öðru þriðja sætinu. Það virðis hafa farið framhjá fólki að Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdtórri eru í tveim fyrstu sætunum, Árni Þór Sigurðsson í öðru og Álfheiður Ingdóttir í þriðja. Öll hafa þau verið öflugir talsmenn umhverfis- og náttúruverndar, sérstaklega Svandís á undanförnum misserum.

Áherslur Kolbrúnar í umhverfis- og náttúruverndarmálum er ekki ástæða þess að hún hafi lent í þriðja sæti. Þvert á móti tel ég að það hafi hjálpað henni frekar en hitt. Mér þykir líklegat að hin margtuggna krafa um endurnýjun sé ástæðan enda var Kolbrún eini þingmaður flokksins í forvalinu sem setið hefur síðan 1999. Hin komu öll inn á þing 2007.

Þetta forval er nær því að vera sigur fyrir grænu gildin heldur en ósigur því flest bendir til þess að þriðja sætið sé þingsæti. Niðurstöður forvalsins munu því stuðla að fjölgun, ekki bara kvenna á Alþingi, heldur líka grænum þingmönnum.

Slappir jakkafatagosar
Það var vandræðalegt að horfa Kastljós í gærkvöldi þar sem Björg Eva og Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,ræddu fréttir vikunnar.

Þau byrjuðu að ræða um mögulega álversuppbygginu í Helguvík og tengd mál.

Kjartan hlýtur, sem varformaður(og fyrrverandi formaður) stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur,  að teljast helsti sérfræðingur Sjálfstæðisflokksins í orkumálum. Þá er hann nýlega búinn að  samþykkja raforkusamning Orkuveitunnar við Century Aluminum vegna umrædds álvers, bæði í stjórn Orkuveitunnar og í borgarstjórn. Ég taldi því að Kjartan væri sérstaklega vel upplýstur stöðu áliðnaðarins í heiminum í ljósi þess að hann var nýlega búin að samþykkja að binda alla nýja orkuframleiðslu Orkuveitunnar næstu 5 til 10 árin í raforkusamningi við álframleiðanda. Það var öðru nær.

Björg Eva leit út fyrir að vera sérfræðingurinn. Vissulega er hún vel upplýst um þessi mál enda erum við búin að skrifa mikið um þau í Smugunni. En verður maður ekki að gera þá kröfu að maður í stöðu eins og Kjartan hafi afburðarþekkingu á málaflokknum,  í það minnta góða þekkingu? Kjartan virtist hins vegar ekki vita neitt – eins og hann hefði hreinlega ekki aðgang að internetinu.

Þetta er kannski dæmigert fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þar hafs margir verið talaðir uppi í að vera snillingar, en þegar á reynir eru þeir bara slappir gosar í jakkafötum.

Bjartsýni og raunsæi
Raunsæi útilokar ekki bjartsýni. Ég veit að ástandið á Íslandi er skítt en ég er samt bjartsýnn.

Ég hef tekið eftir því að margir vilji skipta raunsæinni alveg út fyrir bjartsýnina. Þeir vilja ekki vita af vandanum, bara horfa fram fram í tímann og vona að allt reddist á sjálfu sér.