Hér á bæ hefur netsamband verið ekkert framan af mánuðinum. Loksins er
búið að bæta úr því og fyrsta daginn sem netsamband komst á, húkti ég í
tvo tíma án þess að víkja frá tölvunni og flakkaði á milli mismunandi
síða í hálfgerðu óðagoti, ég vildi skoða svo margt en eirði ekki við
neina síðu því alltaf mundi ég eftir nýrri síðu sem ég hafði ekki
skoðað. Þrátt fyrir að netsamband sé komið á ég erfitt með að koma mér
í tölvugírinn aftur sem er jafnvel ágæt svona rétt yfir hásumarið.
Sambúðin gengur ágætlega enn sem komið er og hvorugt okkur hefur læst hitt úti í bræðiskasti.
Flutningar
Eftir að hafa borið kassa fram og aftur, niður stiga, keyrt á milli og
náð í dót hingað og þangað er nú hægt að segja að ég sé flutt, komin í
vesturbæinn í þetta skipti. Ég er harla ánægð með að eftir tíða
flutninga er þetta komið niður í einu sinni á ári sem er enn of mikið
en skömminni skárri en að flytja tvisvar til þrisvar á ári.
Innflutningspartý verður haldið eins fljóttt og unnt er
Þegar ég verð búin í prófum þá mun ég aldrei fara út úr húsi nema með blásið hár, í fínum fötum og vel tilhöfð
Mánudagurinn
Mánudagar eru sérstakir fyrir mér, fyrir það fyrsta eru þeir verri
heldur en laugardagar og sunnudagar en samt sem áður er gott að koma
heim þegar kona hefur farið í burtu í einhverja stanslausa gleði.Það
getur stundum verið yfirþyrmandi að horfa til alls þess sem kona þurfi
að koma í verk í vikunni þegar hún vill miklu frekar hafa það
huggulegt. En þeir geta verið ágætir því hversdagslífið getur verið
helvíti fínt á köflum þó það sé ekki það skemmtilegasta.
Þessi mánudagur er búinn að vera ÖMURLEGUR, ÖMURLEGUR, ÖMURLEGUR svaf
lítið í nótt og er því búin að vera fáranlega þreytt í dag, með
hausverk og illt í öxlunum (samt ekki það slæm að ég hafi þurft að
hringja norður í mömmu og útlista fyrir henni í smáatriðum hvernig það
lýsir sér og ætlast til að hún sýni því gríðarlegan áhuga), um
morguninn þurfti ég að vesenast vegna vinnunnar sem ég ætla að vinna
næsta vetur, það tók AUÐVITA miklu lengri tíma en það hefði þurft að
gera, skilaði lokaverkefninu mínu í einum áfanga nota bene ég var búin
að gera allt það eina sem ég þurfti að gera var að prenta út helvítis
verkefnið, NEI ÞAÐ GEKK blekið kláraðist, ég reyndi að taka því rólega
og stökk niður Laugaveginn til að kaupa meira, EKKERT BLEK til í
fjárans búðinni, strunsaði heim, náði í bílinn til koma mér þangað þar
sem blek er til, kræst samt hvað svona snatt tekur alltaf langan tíma í
rvk, fékk ekkert stæði og ákvað að taka sénsinn og leggja bílnum í
stöðumælastæði án þess að vera með klink, það tók auðvita lengri tíma
að prenta út verkefnið en ég áætlaði þannig að mín beið STÖÐUMÆLASEKT
þegar ég kom til baka. Varð nú samt ekkert pirruð yfir því ég mun færa
það inn í heimilisbókhaldið sem nauðsynlegan kostnað. Eftir þetta átti
ég að fara að LÆRA undir próf sem er á föstudaginn en lagði mig vegna
þess að ég var úrvinda af þreytu, pirringi og með hausverk en ég er að
læra núna (að blogga er hluti af því að læra)
1. maí
ég skemmti mér svoooooooo vel í gær
ekki alveg jafn hress í dag
en ræðan hjá formanni SFR var góð
Til hamingju með daginn
Broskall?
Kannski muna einhver ykkar eftir brosköllunum góðu úr grunnskóla,
rauður hringur með punkti fyrir augu og nef og svo línu fyrir bros.
Af hverju tölum við alltaf um þetta sem broskalla?
Gróðurhúsið frá helvíti
þetta er ekki einleikið hitinn í íbúðinni minni, ég er farin að sjá holuna í vesturbænum í hillingum.
Mín bíður það skemmtilega verkefni að plokka naglana úr hjólbörðum
mínum um helgina, jei, búin að detta í huga að nýta grislinga hennar
Lilju systir í það verkefni, veit ekki alveg hvað hún myndi segja um
það. En ég er búin að ákveða að setja ekki nagladekk undir bílinn næsta
vetur (til að losna undan svifrykssamviskubitinu), hlunkast bara í
strætó þegar snjórinn og hálkan lætur sjá sig.
Með vorinu koma fögru fyrirheitin
ég ætla að labba frekar en að keyra
ég ætla að kaupa hjól og hjóla um allan bæinn
ég ætla að fara í sund á hverjum degi, ræktina, jóga, íhugun nefndu það
ég ætla að lesa allt það sem ég á eftir að lesa
labba upp á eitt fjall eða svo
láta eingöngu lífrænt ræktaðan mat inn fyrir mínar varir, borða hafragraut og taka lýsi
og svo framvegis
Ég myndi ekki ganga svo langt að segja að ég hati vorin en þessi
árstími! fer í mínar fínustu, á meðan flestir fyllast fítonskrafti og
framkvæmdagleði, nenni ég ekki neinu og með hækkandi sól verð ég
fúllyndar og leiðinlegri. Þetta væri hugsanlega vandamál ef ég byggi
annars staðar en á klakanum en vorið er svo stutt sem er plús. Besta
ráðið held ég sé að svolgra í sig í kvöld þannig að kaupstaðalykt komi
af mér. Annað hvort mun ég hrista af mér fúllyndið og leiðindin og
verða kvenna hressust eða verða enn uppstökkari og með allt á hornum
mér…
Natóvæðing
hér má að líta myndband af næstu sjónvarpsstjörnum Íslands sem tala um natóvæðingu ríkisstjórnarinnar.
Loksins komin með nýja síðu, athugasemdakerfið virkar að vísu ekki og
ég kann ekki að setja inn tengla en prófið fer að klárast og þá mun ég
eyða öllum mínum tíma að laga og bæta síðuna.
Sólin er annars að steikja mig í fínu íbúðinni, þvílíkur viðbjóður, þetta er eins og að vera í helvítis gróðurhúsi.
Ég fer bráðum að huga að flutningum enn einu sinni en stefnir í að ég
flytji bara einu sinni á þessu ári þannig að ég ætti ekki að vera að
kvarta. Förinni er nú heitið í vesturbæinn og ég er ekki frá því að ég
sé farin að þjást af aðskilnaðarkvíða yfir að yfirgefa austurbæinn, það
er bara svo fjandi fínt að vera hér. Auk þess hef ég heyrt að mun meira
sé um vafasamt fólk sem býr í vesturbænum og ég tala nú ekki um
alla glæpamennina sem eru þar.
Ég er búin að sækja um nokkur störf í vikunni, komin með eitt
atvinnuviðtal, allt saman mjög spennandi enda get ég ekki lýst því
hversu mikið ég er komin með leið á því að vera í skóla.
bróðir minn er frábær
Halló
bara að prufa
hello world
komið!
